Ernir Daði, Kristján Karl og Þorsteinn Logi. Ljósm. mm

Ætla alla leið í Söngkeppni framhaldsskólanna

IceGuys New generation og Krumla verður framlag MB

Strákabandið IceGuys New gereration er skipað þremur hressum og hæfileikaríkum strákum í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þetta eru þeir Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson, Þorsteinn Logi Þórðarson og Kristján Karl Hallgrímsson. Þeir tóku þátt í undankeppni MB í janúar fyrir Söngkeppninna og báru sigur úr býtum með lagið Krumla, sem IceGuys flutti á sínum tíma við feikimiklar vinsældir. Myndband með laginu hefur fengið 164 þúsund áhorf á Youtube. Þeir félagir komu í stutt spjall við blaðamann Skessuhorns. Þeir segjast engan afslátt ætla að gefa af því að stefna til sigurs í Söngkeppni framhaldsskólanna 2026. Það sé kominn tími til að MB sigri í þessari keppni! Til þess þurfi þeir þó þéttan stuðning Borgfirðinga og annarra þegar kemur að símakosningunni. Keppnin sjálf fer fram í Háskólabíói laugardaginn 11. apríl og verður sýnd í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu. Til að kjósa þá félaga þarf að hringja í 900-9109.

Atriðið á einni af loka æfingum IceGuys New generation

Setja sitt handbragð á atriðið

„Við erum einfaldlega nýja kynslóðin af IceGuys bandinu; IceGuys New generation. Lagið Krumla var fyrsti hittarinn hjá bandinu. Við endurútsetjum það og flytjum með krafti bæði í söng og dansi,“ segir strákarnir. „Við verðum tanaðir, strípaðir og í hrikalega flottum búningum.“ Aðspurðir segjast þeir hafa tekið ákvörðun um að taka þetta lag strax síðasta haust og byrjað að æfa upp úr því. „Beinagrindin í atriði okkar er vissulega frá þeim í IceGuys, en við setjum okkar handbragð á það. Við byrjuðum strax að æfa dansa og hanna búningana. Við þjálfum atriðið sjálfir en munum fá aðstoð við ýmsa fínslípun þegar nær dregur. Við byrjuðum stífar æfingar í október og smelltum atriðinu svo inn í undankeppnina í MB í janúar. Viðtökurnar voru góðar og við vorum valdir til þátttöku fyrir skólann, nema hvað!“

Snúið að finna tíma til æfinga

Hugmyndin að flutningi á Krumlu kviknaði á lífsnámsviku í Menntaskóla Borgarfjarðar í október. „Þá vorum við með kynningu sem við höfðum verið með í vikunni og það var bara svo ógeðslega gaman,“ segir Ernir Daði. „Þá strax vorum við farnir að lifa okkur inn í þetta hlutverk af lífi og sál. Við fluttum þetta í lífsnámsvikunni en höfum síðan troðið upp bæði í leikskóla og á samkomu eldri borgara við góðar undirtektir.“

Þeir Ernir Daði og Þorsteinn Máni voru báðir í burðarhlutverkum í leiksýningu MB á Gosa, sem frumsýnd var 13. mars síðastliðinn og var sýnd á liðnum vikum. Af þeim sökum var býsna snúið að finna tíma til að æfa atriðið IceGuys New generation. Þá eru þeir allir virkir í ýmist félagsstörfum eða íþróttum. Samt eru þeir bjartsýnir á að atriðið verði flott þegar á hólminn verður komið. „Við ætlum að hafa ógeðslega gaman. Þetta verður skemmtiatriði þar sem börn, frændur og ömmur þeirra munu dansa með heima í stofu. Það munu allir tala um þetta atriði eftir Söngkeppnina.“ Þorsteinn Logi hefur einu sinni áður tekið þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna, en það var í fyrra þegar hann flutti lagið Flugvélar með Nýdönsk.

Allir og ömmur þeirra þurfa að kjós

„Við viljum endilega minna fólk á að símakosningin í keppninni gildir 50% í atkvæðagreiðslunni. Dómnefnd hefur hinn helming atkvæðanna. Við viljum því hvetja alla Borgfirðinga, nágranna okkar og bara landsmenn alla til að henda atkvæði á okkur. Við ætlum að verða heimsfrægir á Vesturlandi og restinni af Íslandi og þurfum þéttan stuðning til að koma okkur alla leið. Við viljum gera íbúa stolta af okkur,“ segja þeir Ernir Daði, Þorsteinn Logi og Kristján Karl að endingu.