
Sjálfstæðisfólk í Borgarfirði kynnti framboðslista sinn
Sjálfstæðisflokkurinn í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, samþykkti í gær framboðslista fyrir kosningarnar 16. maí á fundi fulltrúaráða flokksins í Mýrasýslu og Borgarfjarðarsýslu. Fundurinn var haldinn í björgunarmiðstöðinni á Fitjum í Borgarnesi. Flokkurinn hefur á þessu kjörtímabili átt tvo fulltrúa í sveitarstjórn. Efstu þrjú sæti listans eru skipuð sama fólki og setið hefur í sveitarstjórn undanfarin fjögur ár auk varafulltrúa þeirra. Sigurður Guðmundsson í Borgarnesi er sem fyrr í oddvitasætinu, Ragnhildur Eva Jónsdóttir í Arnþórsholti í öðru sæti og Kristján Ágúst Magnússon á Snorrastöðum í þriðja.
Listinn í heild sinni er þannig:
Nr. 1 Sigurður Guðmundsson, fjármálastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi
Nr. 2 Ragnhildur Eva Jónsdóttir, lögfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi
Nr. 3 Kristján Ágúst Magnússon, bóndi og varasveitarstjórnarfulltrúi
Nr. 4 Birgir Heiðar Andrésson, framleiðslustjóri
Nr. 5 Svana Hrönn Jóhannsdóttir, fjármálaráðgjafi
Nr. 6 Ólafur Tryggvason rekstrarstjóri Ísbílsins
Nr. 7 Sigríður Guðbjartsdóttir, húsmóðir
Nr. 8 Gísli Guðjónsson, bóndi
Nr. 9 Margrét H. Guðmundsdóttir, bs í landslagsarkitektúr
Nr. 10 Heiða Dís Fjeldsted, reiðkennari og tamningamaður
Nr. 11 Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður skólabúða UMFÍ
Nr. 12 Sumarliði P. Sigurbergsson, íþróttakennari og þjálfari
Nr. 13 Fannar Kristjánsson, smiður
Nr. 14 Arnþór Pálsson, bóndi og slökkviliðsmaður
Nr. 15 Birgitta Rán Ásgeirsdóttir, deildarstjóri tæknideildar á Vestursvæði Vegagerðarinnar
Nr. 16 Jónína Erna Arnardóttir, tónlistarskólastjóri og píanóleikari
Nr. 17 Axel Freyr Eiríksson, gæða- og öryggisfulltrúi hjá Ístak
Nr. 18 Magnús Birgir Jónsson, fv. rektor LbhÍ.