Fréttir

true

Einn stærsti sólarhringur í sögu Grundarfjarðarhafnar – myndasyrpa

Miðvikudagurinn 25. mars fer líklega í sögubækurnar hjá Grundarfjarðarhöfn yfir landaðan afla á einum sólarhring. Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri man varla eftir öðru eins en hamagangurinn var mikill hjá starfsmönnum hafnarinnar, flutningabílstjórum, löndunargenginu og öllum þeim sem koma að þjónustu við skipin, allt frá olíudreifingarmönnum til starfsfólks í versluninni. Hvert skipið kom að landi á fætur…Lesa meira

true

Rætt hvort greiða ætti út hluta af eigin fé Sorpurðunar

Nokkrar umræður urðu á aðalfundi Sorpurðunar Vesturlands (SV) í gær um tillögu byggðarráðs Borgarbyggðar frá því í nóvember þess efnis að leggja til að eigendum fyrirtækisins, sveitarfélögum á Vesturlandi, verði greitt út uppsafnað eigið fé af starfseminni. Í ályktun byggðarráðs sagði: „Sorpurðun Vesturlands er öflugt og arðbært hlutafélag í eigu sveitarfélaga á Vesturlandi og er…Lesa meira

true

Snæfellskonur töpuðu fyrir Þór

Kvennalið Snæfells í körfunni sótti Þór Akureyri heim í deildarleik í 1. deildinni á þriðjudaginn. Heimakonur reyndust sterkari, unnu þrjá af fjórum leikhlutum og að leik loknum var staðan 89-72 fyrir Þór. Atkvæðamest í liði Snæfells var Anna Soffía Lárusdóttir með 24 stig, Valdís Helga Alexandersdóttir gerði 13 og Haiden Denise Palmer 12. Hjá Þór…Lesa meira

true

Árlegir Sólardagar í FSN

Það var líf og fjör í Fjölbrautaskóla Snæfellinga nýverið þegar þemadagar skólans voru í gangi. Þeim lauk svo með veglegri árshátíð nemendafélagsins fimmtudaginn 12. mars. Hefðbundið skólastarf var brotið upp og boðið uppá allskonar öðruvísi viðburði eins og félagsvist, Uno, Kviss, pílu, borðtennis og margt fleira skemmtilegt.Lesa meira

true

Ingibjörg í starf framkvæmdastjóra Rauða krossins

Stjórn Rauða krossins á Íslandi hefur ráðið Ingibjörgu Elínu Halldórsdóttur sem framkvæmdastjóra félagsins og mun hún hefja störf 1. maí næstkomandi. Ingibjörg gegndi þar til nýverið stöðu deildarstjóra Rauða krossins við Eyjafjörð en undanfarna mánuði hefur hún starfað sem sérfræðingur í forsætisráðuneytinu. „Ég er full tilhlökkunar að taka við starfi framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi…Lesa meira

true

Keppt var í fimmgangi í Vesturlandsdeilinni

Keppni í fimmgangi F1 Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum fór fram í Faxaborg að kvöldi síðasta þriðjudags. 24 keppendur voru skráðir til leiks og gekk mótið í alla staði vel. Bæði var um að ræða liða- og einstaklingskeppni. A úrslit fóru þannig: Nr. 1. Siguroddur Pétursson og Tign frá Hrauni 6,60 Nr. 2. Reynir Örn Pálmason og…Lesa meira

true

Viðvörunarstig til klukkan 14 í dag

Frá klukkan 7 til 14 í dag er appelsínugul viðvörun fyrir spásvæðið Faxaflóa og víðar um sunnanvert landið og á Vestfjörðum. Það verður suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Talsverð snjókoma eða slydda og skafrenningur með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er…Lesa meira

true

Dagur vatnsins haldinn hátíðlegur

Fyrir rúmu ári fékk Grundarfjarðarbær Life-styrk frá Evrópusambandinu til þess að bæta blágrænum ofanvatnslausnum í þéttbýlið þar sem aðalmarkmið var að minnka álag úrkomu á fráveitukerfi bæjarins og skila hreinna vatni til sjávar. Life-Icewater kynnti því Dag vatnsins sem haldinn var hátíðlegur í Samkomuhúsi Grundarfjarðar sunnudaginn 22. mars. Þar kenndi ýmissa grasa og var Sprengju-Kata…Lesa meira

true

Skessuhorn næst 8. apríl

Blað Skessuhorns kemur EKKI út í dymbilviku, miðvikudaginn 1. apríl. Ástæðan er sú að það myndi lokast inni á pósthúsum fram yfir páska. Næsta tölublað kemur því út miðvikudaginn 8. apríl. Tekið verður á móti pöntunum auglýsinga á netfangið auglysingar@skessuhorn.is og efni sendist á netfangið skessuhorn@skessuhorn.isLesa meira

true

Heimismenn renna sér milli lægða suður yfir heiðar – AFLÝST!

Karlakórinn Heimir úr Skagafirði undirbýr nú suðurferð. Tvennir tónleikar verða í boði. Þeir fyrri verða í Tónbergi á Akranesi annað kvöld, föstudaginn 27. mars klukkan 20:30. Miðar verða seldir við innganginn. Síðari tónleikarnir verða svo í Háteigskirkju í Reykjavík á laugardaginn klukkan 16:00, en miðasala á þá verður á tix.is og við innganginn. Tónleikunum var…Lesa meira