
Viðvörunarstig til klukkan 14 í dag
Frá klukkan 7 til 14 í dag er appelsínugul viðvörun fyrir spásvæðið Faxaflóa og víðar um sunnanvert landið og á Vestfjörðum. Það verður suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Talsverð snjókoma eða slydda og skafrenningur með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni.“
Allir helstu fjallvegir á Vesturlandi, svo sem Holtavörðuheiði, Brattabrekka, Vatnaleið og Fróðárheiði eru nú lokaðir og þá eru einnig lokunarpóstar á Kjalarnesi og við Hafnarfjall.
Veðurspá er nú þannig að það snýst í sunnan 8-15 m/sek eftir hádegi með skúrum eða slydduéljum, en austan hvassviðri og snjókoma norðan- og austantil fram á kvöld. Hlýnar í veðri, hiti um eða yfir frostmarki síðdegis.