Heimismenn renna sér milli lægða suður yfir heiðar

Karlakórinn Heimir úr Skagafirði undirbýr nú suðurferð. Tvennir tónleikar verða í boði. Þeir fyrri verða í Tónbergi á Akranesi annað kvöld, föstudaginn 27. mars klukkan 20:30. Miðar verða seldir við innganginn.

Síðari tónleikarnir verða svo í Háteigskirkju í Reykjavík á laugardaginn klukkan 16:00, en miðasala á þá verður á tix.is og við innganginn.