
Nemendur og kennarar öttu kappi í félagsvist í matsal skólans.
Árlegir Sólardagar í FSN
Það var líf og fjör í Fjölbrautaskóla Snæfellinga nýverið þegar þemadagar skólans voru í gangi. Þeim lauk svo með veglegri árshátíð nemendafélagsins fimmtudaginn 12. mars. Hefðbundið skólastarf var brotið upp og boðið uppá allskonar öðruvísi viðburði eins og félagsvist, Uno, Kviss, pílu, borðtennis og margt fleira skemmtilegt.