Sprengju-Kata er hér að sýna ýmsar tilraunir með vatn og þurrís og vakti mikla athygli. Ljósm. tfk

Dagur vatnsins haldinn hátíðlegur

Fyrir rúmu ári fékk Grundarfjarðarbær Life-styrk frá Evrópusambandinu til þess að bæta blágrænum ofanvatnslausnum í þéttbýlið þar sem aðalmarkmið var að minnka álag úrkomu á fráveitukerfi bæjarins og skila hreinna vatni til sjávar. Life-Icewater kynnti því Dag vatnsins sem haldinn var hátíðlegur í Samkomuhúsi Grundarfjarðar sunnudaginn 22. mars. Þar kenndi ýmissa grasa og var Sprengju-Kata með vísindatilraunir, 9. bekkur bauð uppá andlitsmálningu, Sjómannadagsráð kynnti ýmislegt sem finnst í sjónum, listasýningar frá nemendum ásamt hinum ýmsu félögum og fyrirtækjum sem voru með kynningar sem tengast vatni. Mjög góð aðsókn var á þennan skemmtilega viðburð og ekki loku fyrir það skotið að Sprengju-Kata hafi átt vinsælasta básinn.