Fréttir

true

Búast við að auka þurfi öxulþunga takmarkanir

Staðan á vegum á Vesturlandi er áfram nokkuð óljós, að sögn starfsmanna Vegagerðarinnar, þar sem frost er enn þá að fara úr vegum. „Ljóst er að 10 tonna öxulþungi verða áfram á Snæfellsnesvegi 54 og Vestfjarðarvegi 60 alla vega fram á mánudaginn 23. mars. Eins viljum við vekja athygli á því að á morgun fimmtudaginn…Lesa meira

true

Lögregla rannsakar meint kynferðisbrot

Lögreglan á Vesturlandi hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot karlmanns sem um skamma hríð hefur starfað á leikskólanum Garðaseli á Akranesi. Maðurinn var handtekinn sl. mánudag og hefur verið vikið frá störfum meðan á rannsókn málsins stendur. Maðurinn er grunaður um að hafa brotið kynferðislega á barni. Fundað var með starfsfólki skólans strax um kvöldið. Foreldrum…Lesa meira

true

Tímabundin lokun Fellsendavegar

Fellsendavegur í Hvalfjarðarsveit verður lokaður á morgun, fimmtudag, og föstudag vegna viðgerða á ræsi. “Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,” segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Hækka stýrivexti um kvartprósent

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti í morgun ákvörðun sína um að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,50%. Fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni að þrír nefndarmenn hafi stutt þessa hækkun en þrír vildu hækka meginvexti enn meira, eða um hálft prósentustig. Í tilkynningu segir að…Lesa meira

true

Við áttum okkur einskis ills von þegar holskeflan skall á okkur

„Ef það verða vindorkuver hér uppi um allar heiðar mun það breyta ásýnd sveitarinnar varanlega,“ segir Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í Norðurárdal í Borgarfirði og formaður félagsins Sól til framtíðar. „Byggð í Borgarfirði er aðallega á láglendi en þetta verða hæstu kennileitin ef svo fer fram sem horfir og ómetanleg víðerni verða menguð iðnaðarsvæði.“…Lesa meira

true

Júlíana er alltaf með mér

„Þessi hátíð hefur gefið lífi mínu tilgang,“ segir athafnakonan Gréta Sig Bjargardóttir í Stykkishólmi sem fékk þá hugmynd fyrir 14 árum að efna til bóka- og söguhátíðar í Stykkishólmi. Þrettánda Júlíönuhátíðin verður haldin í Stykkishólmi 19. til 21. mars en hátíðin er ein metnaðarfyllsta menningarhátíð á Vesturlandi og lifir eingöngu á frjálsum framlögum og styrkjum.…Lesa meira

true

Styrkja kaup á björgunar- og skyndihjálparbúnaði

Fulltrúar Rauða kross deildarinnar í Dölum og Reykhólahreppi komu í síðustu viku færandi hendi og afhentu Bjarka Þorsteinssyni sveitarstjóra og Ísak Sigfússyni lýðheilsufulltrúa Dalabyggðar höfðinglegan styrk frá félaginu. Hann mun renna til kaupa á björgunar og/eða skyndihjálparbúnaði í nýju Íþróttamiðstöðina í Búðardal. „Það er ómetanlegt að finna þann stuðning sem uppbygging Íþróttamiðstöðvarinnar nýtur í samfélaginu…Lesa meira

true

Hundamálið verður áfram til meðferðar í stjórnkerfinu

Á dögunum kom fram að Úrskurðarnefnd auðlinda- og umhverfismála ógilti bann Akraneskaupstðar í máli tiltekins íbúa á Akranesi við hundahaldi, þar sem viðkomandi var bannað hundahald í sveitarfélaginu vegna atviks sem átti sér stað 8. ágúst á síðasta ári. Nú kemur skýrt fram í samþykkt um hundahald á Akranesi nr. 782 frá 1. október 2010,…Lesa meira

true

Endurbótum lokið á búningsklefum

Nú er lokið endurbótum á búningsklefum í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Hafa bæði karla- og kvennaklefar verið opnaðir að nýju eftir framkvæmdir síðustu mánaða. Fram kemur á upplýsingasíðu Borgarbyggðar að framkvæmdir við karlaklefann hafi byrjað um miðjan nóvember á síðasta ári. Þar var rýmið stækkað, skipulagi breytt og nýjum sturtum bætt við til að bæta aðstöðu…Lesa meira

true

Skoða framtíðarmöguleika í uppbyggingu íþróttamannvirkja í Stykkishólmi

Bæjarstjórn Stykkishólms stóð fyrir umræðu- og kynningarfundi í Höfðaborg fyrir íbúa sveitarfélagsins í gær þar sem ræddar voru fyrirliggjandi hugmyndir í tengslum við vinnu starfshóps, sem bæjarstjórn hafði skipað fyrir nokkru síðan, um mótun stefnu sveitarfélagsins í íþróttamálum. Hlutverk starfshópsins fólst m.a. í því að móta framtíðarsýn um fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf fyrir íbúa á…Lesa meira