
Lögregla rannsakar meint kynferðisbrot
Lögreglan á Vesturlandi hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot karlmanns sem um skamma hríð hefur starfað á leikskólanum Garðaseli á Akranesi. Maðurinn var handtekinn sl. mánudag og hefur verið vikið frá störfum meðan á rannsókn málsins stendur. Maðurinn er grunaður um að hafa brotið kynferðislega á barni. Fundað var með starfsfólki skólans strax um kvöldið. Foreldrum barna á leikskólanum var svo í gær sent bréf þar sem sagt var frá meintri óviðeigandi framkomu starfsmannsins. Jafnframt voru haldnir tveir fundir með foreldrum í gær þar sem málið var útskýrt. Á þá mættu lögregla, fulltrúar á vegum menntasviðs Akraneskaupstaðar, sálfræðingur, stjórnendur á leikskólanum og fulltrúi frá barnaverndarþjónustunni. Einnig var á fundinum kynfræðingur frá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar sem gaf foreldrum leiðbeiningar um hvernig best væri að ræða við börn um erfið mál. Leikskólastarf heldur áfram óbreytt en starfsfólk, foreldrar og samfélagið allt er mjög slegið vegna málsins.