Hækka stýrivexti um kvartprósent

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnti í morgun ákvörðun sína um að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,50%. Fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni að þrír nefndarmenn hafi stutt þessa hækkun en þrír vildu hækka meginvexti enn meira, eða um hálft prósentustig.