
Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum. Texti og myndir: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Við áttum okkur einskis ills von þegar holskeflan skall á okkur
„Ef það verða vindorkuver hér uppi um allar heiðar mun það breyta ásýnd sveitarinnar varanlega,“ segir Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í Norðurárdal í Borgarfirði og formaður félagsins Sól til framtíðar. „Byggð í Borgarfirði er aðallega á láglendi en þetta verða hæstu kennileitin ef svo fer fram sem horfir og ómetanleg víðerni verða menguð iðnaðarsvæði.“