Fréttir

true

Vesturland er uppselt vegna sólmyrkvans

„Við vitum að það er gríðarlegur áhugi, öll gisting á Vesturlandi er uppbókuð, allir bílaleigubílar á landinu upppantaðir og erlendar ferðaskrifstofur eru í stöðugu sambandi,“ segir Margrét Björk Björnsdóttir fagstjóri Áfangastaða og markasstofu Vesturlands og verkefnisstjóri hjá SSV í samtali við Skessuhorn. Miðvikudaginn 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta…Lesa meira

true

Borgarverk bauð lægst í endurnýjun lagna

Veitur stóðu nýverið fyrir útboði um að endurnýja lagnir undir Borgarfjarðarbrúnni og er um mjög svo krefjandi verkefni að ræða. Erfiðar vinnuaðstæður og mikil umferð er yfir brúnna. Borgarverk ehf. átti lægsta tilboðið í verkið og munu Veitur ganga til samninga við fyrirtækið. Fyrirtækið Stálorka var meðal bjóðenda í verkið eftir forskrift Veitna en fyrirtækið…Lesa meira

true

Styrktarbingó fyrir Lilju Dögg

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði stóð fyrir bingói 25. febrúar síðastliðinn á sal skólans. Allur ágóði af bingóinu rann til Lilju Daggar Gunnarsdóttur sem glímir við illvígt bráðahvítblæði. Lilja Dögg stundaði nám í FSN áður en hún veiktist og vildu samnemendur hennar reyna að hjálpa henni eins og þeir geta með þessu styrktarbingói. Afar góð…Lesa meira

true

Trausti sjálfkjörinn formaður BÍ

Á miðnætti lauk framboðsfresti í embætti formanns Bændasamtaka Íslands. Samkvæmt samþykktum Bændasamtakanna er formaður kosinn á tveggja ára fresti með rafrænni kosningu meðal allra félagsmanna. Sé einungis einn frambjóðandi til formanns þegar frestur til framboðs rennur út telst viðkomandi sjálfkjörinn. Trausti Hjálmarsson sauðfjárbóndi í Austurhlíð var einn í framboði að þessu sinni og er því…Lesa meira

true

Nemendur í Finnlandsferð sem hluta af Nordplusverkefni

Vikuna 16. – 20. febrúar sl. hélt tíu nemenda hópur úr 9. og 10. bekk Grunnskóla Borgarfjarðar til bæjarins Sievi í Norður- Finnlandi, ásamt umsjónarkennurum af unglingastigi, þeim Vigdísi Sigvaldadóttur og Þóru Geirlaugu Bjartmarsdóttur. Skólinn er í Nordplus samstarfi við Jussinpekkankoulu þar, ásamt Hunderupskolen í Odense, en þangað hélt hópur í heimsókn síðastliðið vor. Verkefnið…Lesa meira

true

Gosi á fjalirnar í Menntaskóla Borgarfjarðar

Leikfélag Menntaskóla Borgarfjarðar er nú á lokametrunum í uppfærslu á söngleiknum Gosa í leikgerð Karls Ágústs Úlfssonar. Sýnt verður í Hjálmakletti. Blaðamaður Skessuhorns leit við fyrir skiptingaæfingu hjá leikhópnum síðdegis í gær. Greinilegt var að spennu og tilhlökkunar gætir í hópnum enda einungis tíu dagar í frumsýningu. Æfingar hófust í janúar en leiklistarnámskeið var haldið…Lesa meira

true

Seinka til kvölds keppni í Vesturlandsdeildinni

Klukkan 18 í kvöld stóð til að halda keppni í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í Faxaborg, en keppt verður í Tölt T2. „Í ljósi veðurspár dagsins hefur sú ákvörðun verið tekin að seinka byrjun T2 í Vesturlandsdeildinni til klukkan 20 í kvöld.  Vonandi gengur allt vel og þessi seinkun komi ekki að sök,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Grundarfjörður tapaði naumlega fyrir toppliði KA U20

Blaklið Grundarfjarðar heimsótti topplið KA U20 á laugardasginn. Lið KA U20 er skipað yngri leikmönnum KA, eins og nafnið gefur til kynna, en þessar ungu stelpur hafa farið með himinskautum í 1. deildinni og hafa góða forystu á toppi deildarinnar. Lið Grundarfjarðar situr í fjórða sæti en þær höfðu tapað síðustu tveimur leikjum áður en…Lesa meira

true

Varað er við sviptivindum síðdegis

„Við Hafnarfjall, í Hvalfirði og á norðanverðu Snæfellsnesi verða varasamir sviptivindar frá klukkan 14 til 18 í dag,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. „Hálka verður um leið og hitinn nær upp fyrir frostmark. Það á reyndar við um allt land þegar hlýnar síðar í dag.“Lesa meira

true

Loðnuvertíðin hafin á Akranesi

Ungur bóndi úr Saurbænum segir tekjur sínar á loðnuvertíð fara langt með að dekka áburðarkaup á 600 kinda fjárbúi. Hann verður ásamt hópi fólks að skera og hreinsa loðnu næstu tíu daga Venus NS-150, uppsjávarveiðiskip Brims, kom til hafnar með 1500 tonn af loðnu til vinnslu á Akranesi í gærmorgun. Þetta er fyrsta loðnan sem…Lesa meira