Seinka til kvölds keppni í Vesturlandsdeildinni

Klukkan 18 í kvöld stóð til að halda keppni í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í Faxaborg, en keppt verður í Tölt T2. „Í ljósi veðurspár dagsins hefur sú ákvörðun verið tekin að seinka byrjun T2 í Vesturlandsdeildinni til klukkan 20 í kvöld.  Vonandi gengur allt vel og þessi seinkun komi ekki að sök,“ segir í tilkynningu.

Seinka til kvölds keppni í Vesturlandsdeildinni - Skessuhorn