
Leikarar fyrir skiptingaæfingu í gær. Ljósm. mm
Gosi á fjalirnar í Menntaskóla Borgarfjarðar
Leikfélag Menntaskóla Borgarfjarðar er nú á lokametrunum í uppfærslu á söngleiknum Gosa í leikgerð Karls Ágústs Úlfssonar. Sýnt verður í Hjálmakletti. Blaðamaður Skessuhorns leit við fyrir skiptingaæfingu hjá leikhópnum síðdegis í gær. Greinilegt var að spennu og tilhlökkunar gætir í hópnum enda einungis tíu dagar í frumsýningu. Æfingar hófust í janúar en leiklistarnámskeið var haldið í skólanum í nóvember. Ingunn Steinunn Henningsdóttir leikstýrir sýningunni.