Fréttir

true

Bændafundur um upprekstrarmál

Fjölmargar áskoranir fylgja fækkun fjár og í röðum bænda Á miðvikudag í liðinni viku var boðað til íbúafundar í Þinghamri í Stafholtstungum. Fundarboðandi var fjallskilanefnd Þverárupprekstrar. Fundurinn var öllum opinn og til umræðu voru málefni upprekstrarfélagsins. Ekki var ákveðin dagskrá heldur lagt upp með að gestir myndu tjá sig um þá stöðu sem bændur eru…Lesa meira

true

Gott að starfa í Borgarnesi

Spjallað við Sigurð Kristjánsson fjármálastjóra Borgarbyggðar Í byrjun árs var tilkynnt að nýr fjármálastjóri væri tekinn við hjá Borgarbyggð. Skessuhorn ákvað að slá á þráðinn til hans og við það rifjuðust upp ýmsar tengingar við Vesturland og reyndar Vestfirði líka. Það er Sigurður Kristjánsson sem hér um ræðir, en hann tók við starfinu 20. janúar…Lesa meira

true

Vona að ró skapist um starfsemi skólans

Sveitarstjórn Borgarbyggðar ræddi stöðu og stefnu Háskólans á Bifröst á fundi sínum 12. febrúar síðastliðinn. Þar var eftirtalin bókun lögð fram og samþykkt samhljóða: „Háskólinn á Bifröst hefur verið burðarás í að mennta fólk til sérfræði- og stjórnunarstarfa í íslensku atvinnulífi. Skólinn hefur verið brautryðjandi í fjarnámi og lagt mikið af mörkum til að styrkja…Lesa meira

true

Sluppu með skrekkinn úr bílveltu

Um klukkan 13 í dag varð bílvelta vestan við Grundarfjörð á Snæfellsnesi, skammt frá afleggjaranum að Kvíabryggju. Sjúkrabíll og björgunarliðar fóru á vettvang. Fernt var í bílnum og sluppu allir án meiðsla. Aðstæður voru góðar til aksturs, vegurinn auður og hálkulaus. Bíllinn er illa farinn og líklega ónýtur. Meðfylgjandi mynd af vettvangi sendi vegfarandi Skessuhorni.Lesa meira

true

Góð þátttaka á fyrsta KB mótinu

Fyrsta mótið í KB-mótaröðinni í hestaíþróttum fór fram á laugardaginn. Kaupfélag Borgfirðinga er sem fyrr bakhjarl mótaraðarinnar. Um er að ræða bæði einstaklings- og liðakeppni en að þessu sinni keppa fimm lið. Það eru lið Grillhússins, Fjöllan, Hvítárliðið, Skjólbrekka – Berg og Co og Dreyrafákar. Þrjú mót eru á dagskrá í vetur þegar keppt eru…Lesa meira

true

Vinna við jarðhitarannsóknir heldur áfram við Borg

Verkfræðistofan Cowi Ísland ehf. hefur óskað eftir um framkvæmdaleyfi til jarðgrunns könnunar í landi Borgar á Mýrum, nánar tiltekið suður af bænum, á túni eyðibýlisins Suðurríkis. Fyrirhugað er að gera vegslóða og grafa fjórar holur, allt að fjögurra metra djúpar, með beltagröfu til þess að fá gott snið af jarðlögum. Að skrásetningu jarðlaganna lokinni verður…Lesa meira

true

Stefna að tjaldbúðum í Efra Nesi

Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar hefur fyrir sitt leyti samþykkt umsókn um deiliskipulag á jörðinni Efra Nesi í Stafholtstungum, en óskar eftir að í deiliskipulagi verði sett fram áfangaskipting þeirrar uppbyggingar sem fyrirhuguð er. Þetta kemur fram í fundargerð afgreiðslufundar frá mándeginum 16. febrúar þar sem lögð var fram lýsing á deiliskipulagi fyrir um 8,6 hektara landspildu innan…Lesa meira

true

Frestuðu afgreiðslu leyfis fyrir fuglaskoðunarhús

Skessuhorn greindi frá því í síðustu viku að sótt var um leyfi til sveitarfélagsins Stykkishólms til að byggja ríflega 200 fermetra fuglaskoðunarhús á eyðibýlinu Jónsnesi í Helgafellssveit. Jörðin er 143 hektarar að stærð og var seld fyrir nokkru til fyrirtækisins Jónsness ehf sem hafði endurnýjað áður innsenda umsókn sína. Um er að ræða 204 fm…Lesa meira

true

Nota ensku í samskiptum sín á milli

Á fundi skólanefndar Grundarfjarðarbæjar í byrjun vikunnar voru m.a. ræddar niðurstöður úr könnun meðal nemenda í 6.-10. bekk grunnskólans frá því í október en síðari hluti hennar var gerður nú í febrúar. Fram kom í fundargerð að út frá niðurstöðum úr könnuninni verið ráðist í úrbætur. Áhersluatriði komandi skólaárs verður m.a. að auka aga í…Lesa meira

true

Snjóar um sunnanvert landið í kvöld

Í kvöld er spáð snjókomubakka inn á sunnan- og suðvestanvert landið. Vegagerðin bendir á að frá Sandskeiði og austur yfir Hellisheiði sé reiknað með allhvössum vindi að auki og blindu frá því í kvöld og fram yfir morgunumferðina. Syðst á landinu, svo sem í Mýrdal, verður hríðarveður og skafrenningur og þar er hætt við að…Lesa meira