
Jónsnes. Ljósm. sá
Frestuðu afgreiðslu leyfis fyrir fuglaskoðunarhús
Skessuhorn greindi frá því í síðustu viku að sótt var um leyfi til sveitarfélagsins Stykkishólms til að byggja ríflega 200 fermetra fuglaskoðunarhús á eyðibýlinu Jónsnesi í Helgafellssveit. Jörðin er 143 hektarar að stærð og var seld fyrir nokkru til fyrirtækisins Jónsness ehf sem hafði endurnýjað áður innsenda umsókn sína. Um er að ræða 204 fm byggingu þar sem megin burðarvirkið er steyptar súlur, steypt botnplata og forsteyptar veggeiningar ásamt steyptu þakvirki. Með umsókninni fylgdu aðaluppdrættir frá Guðmundi Jónssyni arkitekt sem er þekktur í faginu og starfar í Noregi.