
Veröld
Veröld – Safn


Hjá mörgum skipa íþróttir veigamikinn sess í tilverunni. Ýmist sem beinir þátttakendur eða til stuðnings á ýmsan hátt. Fólk tekur til dæmis þátt í íþróttum barna sinna með því að styðja þau til þátttöku, hvetja, skutla eða leiðbeina. Allir vita að virk þátttaka þeirra í íþróttum er holl fyrir líkama og sál. Hefur fyrirbyggjandi áhrif…Lesa meira


Kennitölur eru afskaplega mikilvægt fyrirbrigði í íslensku samfélagi. Kannski má líkja kennitölu við fanganúmer sem brennd voru á hörund fyrr á tíð; við fáum slíkri tíu stafa tölu úthlutað eftir fæðingu og berum hana til æviloka. Fyrirtæki og stofnanir fá sömuleiðis við stofnun úthlutað kennitölu. Þær eiga það sammerkt að byrja aldrei á lægri tölu…Lesa meira

Óhætt er að segja að karlakórinn Söngbræður njóti sífelldra vinsælda þótt kominn sé fast að fimmtugu. Ár eftir ár hefur kórinn fyllt þau félagsheimili sem leigð hafa verið undir sviða- og hrossakjötsveislu ásamt söngskemmtun í byrjun ás. Undanfarin ár hefur skemmtunin farið fram í Þinghamri á Varmalandi sem er stærsta félagsheimilið í héraðinu. Uppselt var…Lesa meira


Framundan er skemmtilegur tími fyrir alla sem hafa ánægju af boltaíþróttum, ekki síst handbolta sem vissulega má telja þjóðaríþrótt okkar í ljósi þess að glíman hefur látið undan síga. Evrópumót karla hefst á föstudaginn og verður fróðlegt að fylgjast með spræku liði okkar í þeirri veislu. Strákarnir sýndu ótrúlega flottan leik gegn Frökkum í æfingaleik…Lesa meira

Á föstudaginn fyrir jól voru 50 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Í tilkynningu frá skólanum segir að stór hluti útskriftarnema hafi lokuð dreifnámi í húsasmíði eða sautján talsins. Samtals hafi 28 lokið námi í húsasmíði þar af þrjár konur. Tveir nemendur luku námi bæði í húsasmíði og viðbótarnámi til stúdentsprófs, þrír nemendur ljúka…Lesa meira


Nú í upphafi árs vil ég óska lesendum Skessuhorns gleðilegs og gæfuríks árs með þökk fyrir liðið. Vonandi verður nýtt ár hagfellt sem flestum. Að mínu áliti mun liðið ár verða auðgleymt nema kannski helst fyrir þær sakir að við fengum gott veður. Eins og fram kemur í frétt hér í blaðinu í dag reyndist…Lesa meira