
Veröld
Veröld – Safn


Á mánudaginn var með viðhöfn tekið á móti fyrstu farþegavélinni hingað til lands sem flogið var frá Kína með einni millilendingu í Danmörku. Flugtíminn er tæpar 16 klukkustundir. Flugfélagið heitir Air China og með hverri vél geta allt að 300 manns tekið sér far. Félagið áætlar að fljúga þrisvar í viku hingað til lands til…Lesa meira

Hallgrímshátíð hefst með tónleikum kl. 16.00 á laugardaginn. Sönghópurinn Cantores Islandiae undir stjórn Ágústar Inga Ágústssonar flytur fagra og sjaldheyrða tónlist tileinkuð Maríu Guðsmóður og ljóðum Hallgríms Péturssonar. Flytjendahópurinn er óvenjulegur; sönghópur karlaradda, forn blásturshljóðfæri, mezzósópran og orgel. Aðgangur er ókeypis. Á sunnudag verður hátíðarmessa kl. 14.00, síðan kirkjukaffi í boði sóknarnefndar í Sumarbúðum KFUM…Lesa meira


Á föstudaginn hefst hér um vestanvert landið veiðitímabil á rjúpu. Fimm daga vikunnar til 1. desember mega veiðimenn ganga til rjúpna. Þau skilyrði eru sett við veiðunum að ekki má selja bráðina, hvorki í verslanir né á öðrum markaði. Slíkar reglur gagnast lítið því ekkert eftirlit er með veiðunum. Því er engan veginn útilokað að…Lesa meira

Ljósmyndir af gömlum bifreiðum úr safnkosti Byggðasafns Dalamanna eru nú til sýnis í anddyri stjórnsýsluhússins í Búðardal. Myndirnar eru allar svarthvítar og spanna tímabilið frá um 1935 til 1970. Þær veita áhugaverða innsýn í bílasögu fyrri tíma. Safnið leitar jafnframt til almennings eftir upplýsingum um bifreiðarnar, svo sem tegundir þeirra og sögu. Markmiðið er að…Lesa meira


Það voru ánægjuleg tíðindi liðinnar viku þegar aðildarfélög Alþýðusambands Íslands undirrituðu samkomulag við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Staðan var vissulega snúin í ljósi þess að tólf mánaða verðabólga var langt umfram það sem samið hafði verið um að hún mætti vera á samningstímanum. Það hafði orðið forsendubrestur og ekkert óeðlilegt við það…Lesa meira

Við birtum í Skessuhorni í sumar ferðasögu Flemming Madsen um Evrópu í þremur þáttum. Vegna galla í myndum birtist annar kafli ferðasögunnar ekki hér á vefnum og skal nú bætt úr því með hluta þeirra mynda sem fylgdu með í prentútgáfu Skessuhorns. Fyrsta kafla Evrópuferðalagsins lauk í bænum Deggendorf í Þýskalandi, sem kvaddur var að…Lesa meira

Í tilefni Barnamenningarhátíðar Vesturlands efnir Hvalfjarðarsveit til skemmtilegrar sketsasamkeppni fyrir ungmenni á Vesturlandi undir yfirskriftinni „Leiktu fullorðna.“ Þátttakendur eru hvattir til að gefa sköpunarkraftinum lausan tauminn, semja handrit, bregða sér í hlutverk og festa afraksturinn á filmu. Verkefnið gefur ungmennum þannig tækifæri til að spreyta sig á handritagerð, leik og kvikmyndagerð – og ekki síst…Lesa meira