
Um íslensku rjúpuna
Á föstudaginn hefst hér um vestanvert landið veiðitímabil á rjúpu. Fimm daga vikunnar til 1. desember mega veiðimenn ganga til rjúpna. Þau skilyrði eru sett við veiðunum að ekki má selja bráðina, hvorki í verslanir né á öðrum markaði. Slíkar reglur gagnast lítið því ekkert eftirlit er með veiðunum. Því er engan veginn útilokað að þegar veiðimaður hefur náð í jólamatinn fyrir fjölskyldu sína, haldi hann áfram að skjóta.
Rjúpan er afar sérstakur fugl og í miklu uppáhaldi hjá mér. Því háttar þannig til í sveitinni við kofa okkar hjóna að kjörlendi er fyrir rjúpur. Skógur og kjarrivaxið svæði þar sem mosagróin holt og berjalyng eru bókstaflega veisluborðið sem þær sækjast eftir. Í sjónfæri verpa að minnsta kosti tvö pör rjúpna og þegar ungarnir eru komnir á legg um mitt sumar er býsna stór hópur að kroppa. Þær eru jafnvel á undan húsbóndanum að tína þau ber sem þar ná að þroskast. Staðreyndin er sú að rjúpan er fremur mannelsk og leitar skjóls nærri mannfólkinu. Sér minni ógnun í fólki en til dæmis ref og ránfuglum sem reglulega eru á höttunum eftir ljúffengri bráð. Rjúpan á meðfylgjandi mynd er úr ungahópnum sem ólst þarna upp í sumar.
Hlutverkaskipti rjúpnahjónanna er fast mótað. Hænan verpir jú eggjunum og sér að mestu um uppeldi unganna, sem eru reyndar fljótir að komast á legg. Karrinn hins vegar er stöðugt á vaktinni því aðsteðjandi ógnir eru fjölmargar. Ef hann telur hættu á ferðum gerir hann sig áberandi og bókstaflega lætur ógnina vita af sér til að dreifa athyglinni frá hreiðrinu. Líklega hefur þetta hátterni leitt til þess að rjúpan hefur lifað af í gegnum þykkt og þunnt.
Í aldanna rás hefur rjúpan aðlagast oft á tíðum óblíðum aðstæðum. Þannig lifir hún bæði á láglendi en færir sig til fjalla á haustin. Atferli hennar breytist þannig mikið eftir árstíðum og tengist meðal annars fæðuöflun, varpi, veðri og því hvernig hún ver sig gegn óvininum. Rjúpan er að mestu staðfugl en ferðast á milli svæða eftir árstíðum og aðstæðum. Þannig eru nú rjúpurnar sem komust á legg í friðsæla skóginum okkar í sumar flognar til fjalla þar sem þær fylgja gjarnan snjólínunni og halda sig á svæði sem er hvað líkast vetrarlit þeirra. Eitt áhugaverðasta einkenni rjúpunnar er nefnilega hvernig hún skiptir um lit eftir árstíðum. Á veturna er hún nær alveg hvít og fellur því vel inn í snævi þakið umhverfið. Á sumrin verður fiðurhamurinn brún- og gráleitur, sem hjálpar henni að falla vel inn í umhverfi gróðurs og holta. Á veturna er minna um fæðu og þá étur rjúpan helst brum, rekla og sprota af víði og birki. Rjúpur eyða töluverðum tíma í að leita sér að æti og þurfa að nýta orkuna vel, sérstaklega yfir köldustu mánuðina. Þær halda sig jafnan á jörðinni og ganga frekar en að fljúga. Ef þær verða hræddar geta þær þó flogið býsna hratt, en fara ekki langt. Á veturna safnast rjúpur oft saman í hópa, sem getur auðveldað þeim að finna fæðu og fylgjast með aðsteðjandi hættum. Á sumrin eru þær hins vegar yfirleitt dreifðari, sérstaklega á varptímanum. Það einkennir hjónalífið að myndarlegur karri getur hæglega átt tvær kerlingar, ekki ósvipað mormónum í Ameríku.
Atferli rjúpunnar sýnir hversu vel hún hefur aðlagast íslenskri náttúru. Með felulitum, árstíðabundnum breytingum á hegðun og góðri hæfni til að lifa við erfiðar aðstæður tekst henni að þrauka í krefjandi umhverfi. Rjúpan er því mikilvægur og áhugaverður hluti af íslensku dýralífi. Ég velti því fyrir mér hvort við Íslendingar ættum ekki að láta af veiðum á rjúpu og friða hana með öllu. Mér finnst að þessi vinalegi hænsnfugl, sem lifað hefur með þjóðinni allar þessar aldir, eigi það skilið að hættunum sem að þeim steðjar fækki heldur. Ránfuglar, refir og minkar sjá öruggleg um að halda rjúpnastofninum niðri. Í það minnsta hvet ég þá veiðimenn sem hyggjast ganga til rjúpna í vetur til að gæta hófs við veiðarnar.
Magnús Magnússon