Innspýting í ferðaþjónustu

Á mánudaginn var með viðhöfn tekið á móti fyrstu farþegavélinni hingað til lands sem flogið var frá Kína með einni millilendingu í Danmörku. Flugtíminn er tæpar 16 klukkustundir. Flugfélagið heitir Air China og með hverri vél geta allt að 300 manns tekið sér far. Félagið áætlar að fljúga þrisvar í viku hingað til lands til að byrja með. Vissulega er um tímamót að ræða í flugsögunni og um leið opnast gríðarleg tækifæri, bæði fyrir Íslendinga að fara utan, en ekki síður fyrir íslensk fyrirtæki að taka á móti nýjum gestum.

Kína er næstfjölmennasta land veraldar, þar býr 1,4 milljarður og landið er annað stærsta hagkerfi heims á eftir Bandaríkjunum. Kínverskum ferðamönnum hefur fjölgað afar mikið á Íslandi á undanförnum árum. Í samantekt Hafþórs Inga Gunnarssonar, verkefnastjóri hjá Áfangastaða- og Markaðsstofa Vesturlands, voru gestakomur frá Kína á Vesturland 4.674 árið 2023, fjölguðu í 6.733 árið 2024 og náðu 9.909 á síðasta ári. Það jafngildir 112% fjölgun á aðeins tveimur árum og undirstrikar þá sterku stöðu sem Vesturland er að ná meðal kínverskra ferðamanna. Á landsvísu voru kínverskir ferðamenn 139 þúsund á síðasta ári sem var met og í nýliðnum septembermánuði voru þeir tæplega tuttugu þúsund. Með tilkomu þessarar nýju flugtengingar milli landanna mun aukningin verða enn meiri en áður.

Þetta eru afar jákvæð tíðindi fyrir íslenska ferðaþjónustu á tímum þar sem greinin hefur staðið frammi fyrir ýmsum áskorunum. Flugleiðin frá Kína opnar aðgang að einum stærsta og mest vaxandi ferðamannamarkaði heims og skapar tækifæri fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki að sækja fram á alþjóðlegum mörkuðum. Kína er nú fjórði stærsti ferðamannamarkaður Íslands. Hótelgistinætur þeirra voru um 413 þúsund og neysla þeirra hér á landi var um 10 milljarðar króna árið 2025.

Ávinningurinn gæti orðið sérstaklega mikill fyrir Vesturland, að sögn Hafþórs Inga. „Kínverskum ferðamönnum hefur fjölgað hratt í okkar landshluta undanfarin ár og þróunin sýnir að áhugi markaðarins á Vesturlandi er vaxandi. Gögn um gistinætur sýna að kínverskir ferðamenn sækja Vesturland ekki eingöngu heim yfir sumarmánuðina. Árið 2025 voru gistinætur þeirra yfir vetrarmánuðina nóvember til mars fleiri en yfir hefðbundna sumarmánuði, júní til ágúst. Það undirstrikar mikilvægi kínverska markaðarins fyrir heilsárs ferðaþjónustu á Vesturlandi og þau tækifæri sem felast í nýrri flugtengingu við Kína.“

Á undanförnum mánuðum hef ég fært í tal þau tækifæri sem margar helstu atvinnugreinar okkar hafa í hendi sér. Þrátt fyrir barlóm og tímabundnar þrengingar, einkum þegar horft er til efnahagsmála og vaxtakjara, er ljóst að fiskverð er hátt, vöxtur verður mikill í landeldi á laxi, álverð er hátt í söuglegu samhengi og hingað munu ferðamenn streyma í vaxandi mæli vegna heilnæms lofts og hófstilltara hitafars en t.d. í sunnanverðri Evrópu. Þessi viðbót sem felst í að hægt er að fljúga hingað í beinu flugi með einni millilendingu frá Kína, mun auka enn á eftirspurn. Íslendingar ættu því að bera sig vel og búa sig undir betri tíð með blóm í haga.

Magnús Magnússon