Ungmenni leika fullorðna í sketsasamkeppni

Í tilefni Barnamenningarhátíðar Vesturlands efnir Hvalfjarðarsveit til skemmtilegrar sketsasamkeppni fyrir ungmenni á Vesturlandi undir yfirskriftinni „Leiktu fullorðna.“ Þátttakendur eru hvattir til að gefa sköpunarkraftinum lausan tauminn, semja handrit, bregða sér í hlutverk og festa afraksturinn á filmu. Verkefnið gefur ungmennum þannig tækifæri til að spreyta sig á handritagerð, leik og kvikmyndagerð – og ekki síst að sýna hvernig fullorðna fólkið lítur út með augum yngri kynslóðarinnar.

Í dómnefnd sitja Bergur Líndal kvikmyndagerðarmaður, Brynhildur Stefánsdóttir formaður menningar- og markaðsnefndar Hvalfjarðarsveitar og Matthías Tryggvi Haraldsson handritshöfundur. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú skemmtilegustu myndverkin. Skilafrestur er til 31. október og skal skila myndböndum í gegnum sérstakan innsendingarhlekk á SharePoint.