Veröld

Hallgrímshátíð í Saurbæ um helgina

Hallgrímshátíð í Saurbæ um helgina

Hallgrímshátíð hefst með tónleikum kl. 16.00 á laugardaginn. Sönghópurinn Cantores Islandiae undir stjórn Ágústar Inga Ágústssonar flytur fagra og sjaldheyrða tónlist tileinkuð Maríu Guðsmóður og ljóðum Hallgríms Péturssonar.  Flytjendahópurinn er óvenjulegur; sönghópur karlaradda, forn blásturshljóðfæri, mezzósópran og orgel. Aðgangur er ókeypis. Á sunnudag verður hátíðarmessa kl. 14.00, síðan kirkjukaffi í boði sóknarnefndar í Sumarbúðum KFUM…

Um íslensku rjúpuna

Á föstudaginn hefst hér um vestanvert landið veiðitímabil á rjúpu. Fimm daga vikunnar til 1. desember mega veiðimenn ganga til rjúpna. Þau skilyrði eru sett við veiðunum að ekki má selja bráðina, hvorki í verslanir né á öðrum markaði. Slíkar reglur gagnast lítið því ekkert eftirlit er með veiðunum. Því er engan veginn útilokað að…

Gamlar bifreiðamyndir til sýnis í Búðardal

Ljósmyndir af gömlum bifreiðum úr safnkosti Byggðasafns Dalamanna eru nú til sýnis í anddyri stjórnsýsluhússins í Búðardal. Myndirnar eru allar svarthvítar og spanna tímabilið frá um 1935 til 1970. Þær veita áhugaverða innsýn í bílasögu fyrri tíma. Safnið leitar jafnframt til almennings eftir upplýsingum um bifreiðarnar, svo sem tegundir þeirra og sögu. Markmiðið er að…