
Gáleysi og ásetningur
Undanfarnar vikur og misseri hafa margar alvarlegar fréttir verið sagðar úr umferðinni hér á landi. Á laugardaginn varð til dæmis slys austur á Jökuldalsheiði. Fjórir bílar með alls átta manns um borð lentu saman. Tveir létust og aðrir tveir eru lífshættulega slasaðir. Lögregla rannsakar tildrög slyssins sem á þessari stundu liggja ekki fyrir, en aðstæður á vettvangi þóttu ekki hafa verið ástæðan ein og sér. Síðla í sumar varð banaslys á Krýsuvíkurvegi þar sem þrennt beið bana, allt ungt fólk sem átti framtíðina fyrir sér. Í kjölfar umræðu um það slys rifjaði ungur maður upp atvik sem varð á Akranesi fyrir 18 árum. Bíll sem hann ók hafnaði á húsvegg og farþegi í bílnum lést.
Rannsókn á tildrögum banaslyss í Eyjafirði fyrir hálfu öðru ári sýndi að bílnum hafði verið ekið á 200 kílómetra hraða þegar slysið varð. Ökumaður og farþegi voru í bílnum og létust bæði. Mér vitanlega er ekki búið að gefa út opinberlega ástæðu banaslyssins á Krýsuvíkurvegi í lok ágúst, en leiða má að því líkum hver hún verður. Svona frásagnir eru því miður allt of margar og það er þyngra en tárum taki að skrifa um þetta.
Svo virðist sem óhuggulegum sögum fjölgi af vafasömu atferli ungs fólks við akstur. Ekið er á ofsahraða og símar notaðir til að sýna ökuhraðann og „flottast“ þykir ef sést þegar ökumaður tekur af sér bílbeltið á ferð. Jafnvel þegar aksturshraðinn er 160 kílómetra á klukkustund! Rætt var við lögreglu um þessa áhættuhegðun og reynir hún eftir mætti að sporna við. Á vegum lögreglu er nú búið að koma upp deildum samfélagslöggu en í þeim eru lögreglumenn sem sinna forvörnum og vakta m.a. þá samfélagsmiðla sem ungt fólk er mest að nota. Markmið samfélagslöggu er að efla tengsl lögreglu við íbúa, skóla og félagsmiðstöðvar. Þegar í ljós kemur að athæfi sem þetta er raunverulega að eiga sér stað, eins og slysin sýna, er þakkarvert að lögregla er á höttunum eftir viðkomandi. Þessari öfugþróun verður ekki snúið við nema með því að ná til gerendanna, en ekki síst samfélagsins sem þeir alast upp í, lifa og hrærast. Þá verður að auka fræðslu og óhjákvæmilegt er að herða verður viðurlög við umferðarlagabrotum af þessu tagi.
Öll höfum við orðið vitni af gáleysi í umferðinni en flest umferðarlagabrot eru framin þegar því er að skipta. Flestir hafa sjálfir staðið sig af gáleysislegum akstri; ekið syfjaðir, of hratt miðað við aðstæður eða almennt ekki verið í standi til aksturs. Vikulegar fréttir úr umferðinni frá Lögreglunni á Vesturlandi sýna það og sanna. Þegar fólk brýtur alvarlega af sér í umferðinni kemur til kasta dómstóla. Þeir þurfa að leggja mat á háttsemi sakbornings og finna út hvort hegðun hans teljist gáleysisleg samkvæmt lögum. Þá þurfa dómarar einnig að leggja mat á hvenær huglæg afstaða geranda telst vera gáleysisleg, stig gáleysis þ.e. hvort um sé að ræða einfalt gáleysi, eða stórfellt gáleysi. Dómarar þurfa að skoða hvar mörkin liggja, hvort um hafi verið að ræða verknað sem framinn er af ásetningi eða gáleysi, hvar mörkin liggi milli þessara stiga, eða var um að ræða refsilausa hegðun.
Það er með ólíkindum að lesa lýsingar ungs fólks sem segir frá hegðun ökumanna af þessu tagi. Hraðakstur eins og lýst er hér að ofan er það sem kallast stórfellt gáleysi. Unga fólkið okkar mun ekki láta af slíkri hegðun nema með þjóðarátaki þar sem sýnt er fram á að viðkomandi sé ekki með réttu ráði og þar af leiðandi ekki fær um að aka bíl. Áhrifaríkast er að jafnaldrarnir séu upplýstir og komi meintun gerendum það fyrir sjónir að það er ekkert flott eða töff við að aka eins og vitleysingur. Viðurlögin þarf auk þess að herða. Ævilöng svipting ökuréttinda og háar fjársektir er líklega það sem koma skal. Allir þurfa að leggjast á eitt; uppalendur, skólar, lögregla, ökukennarar, jafnaldrar og stjórnvöld. Hugarfarsbreytingu þarf til að banaslysum af stórfelldu gáleysi fækki eða heyri einfaldlega sögunni til.
Magnús Magnússon