
Síðastliðinn laugardag var í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri opnuð sérstök sýning sem tileinkuð er Sigurði Skarphéðinssyni. Sýningarhöfundur er Anna Heiða Baldursdóttir, sérfræðingur hjá Landbúnaðarsafninu. Stofa Sigga Skarp er í einni af súrheysgryfjum í hlöðu Halldórsfjóss og er viðbót við grunnsýningu safnsins. Um 200 gestir mættu á laugardaginn. Siggi Skarp, eins og hann var jafnan kallaður,…Lesa meira







