Gráðugur þorskur

Freystinn Guðmundsson rær með föður sínum Guðmundi Birni Steinþórssyni á strandveiðum á Diddu SH frá Ólafsvík. Á mánudagsmorgun drógu þeir þennan væna þorsk sem hafði auk þess verið hálfnaður með að sporðrenna vænum ufsa. Líklega hefur ufsinn tekið krókinn og þorskurinn ætlað að gera sér hann að góðu. Þekkt er að þorskurinn éti undan sér smærri fisk. Engu að síður er þessi ufsi í stærra lagi miðað við stærð þorsksins.