Íþróttir

true

Valdís Þóra efst í Ástralíu

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, situr í efsta sæti NSW Open mótsins í Ástralíu, en mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Valdís lék frábært golf á fyrsta hring mótsins, kom í hús á 63 höggum sem er hvorki meira né minna en átta höggum undir pari. Annan hring fór hún á einu undir…Lesa meira

true

Eldri borgarar í Grundarfirði á fullu í ræktinni

Félag eldri borgara í Grundarfirði og Grundarfjarðarbær hafa komið af stað verkefni um heilsueflingu fyrir íbúa sem eru 60 ára og eldri eða búa við örorku. Verkefnið er í samvinnu við Grundarfjarðardeild Rauða Kross Íslands og með aðkomu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og fleiri aðila. Boðið er upp á tíma í líkamsræktinni tvisvar í viku og svo…Lesa meira

true

Borgnesingar fallnir

Skallagrímur heimsótti Val í fallbaráttuslag Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímur þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að eiga áfram möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. Valsmenn gátu hins vegar með sigri fellt Skallagrím og þar með tryggt sér áframhaldandi veru í Domino‘s deildinni. Eftir nokkuð jafnan og spennandi fyrri…Lesa meira

true

Töluverðar breytingar á golfreglum

Nýjar og breyttar golfreglur tóku gildi um áramótin síðustu. Breytingarnar eru töluvert margar, eða samtals 45 talsins og miða að því að nútímavæða reglur leiksins. Golfklúbburinn Oddur í Garðabæ hefur tekið saman þær tuttugu reglubreytingar sem helst hafa áhrif á leik kylfinga. Við þá samantekt er stuðst hér. Tuttugu helstu breytingarnar eru eftirfarandi: Leitartími er…Lesa meira

true

Tap í botnslagnum

Skallagrímur og Breiðablik mættust í botnslag Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Kópavogi. Blikar höfðu undirtökin meira og minna allan leikinn, þó Skallagrímskonur væru aldrei langt undan. Fór svo að lokum að heimakonur höfðu betur, 81-72. Breiðablik byrjaði leikinn betur en Skallagrímskonur komust yfir um miðjan fyrsta leikhluta. Þá tóku heimakonur…Lesa meira

true

Dramatík suður með sjó

Snæfell heimsótti Keflavík í stórleik 23. umferðar Domino‘s deildar kvenna í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda en Snæfell var þó feti framar nánast allan tímann. En Keflvíkingar fylgdu alltaf fast á hæla Hólmara og náðu undir lokin að stela sigrinum. Lokatölur voru 79-77 fyrir Keflavík. Snæfellskonur höfðu heldur yfirhöndina í…Lesa meira

true

Samið við fyrirliðann og fjóra aðra leikmenn

Það hefur verið töluvert um að vera í leikmannamálum Víkings Ó. undanfarið, en nýverið samdi Ólafsvíkurliðið við fjóra leikmenn. Ber þar fyrst að nefna að fyrirliðinn Emir Dokara hefur gert nýjan samning við liðið út keppnistímabilið 2019. Emir leikur í vörninni og hefur verið á mála hjá Víkingi Ó. frá árinu 2011. Fyrirliðinn er jafnframt…Lesa meira

true

Misstu heimamenn fram úr sér eftir hléið

Snæfellingar heimsóttu Selfyssinga í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Eftir fremur jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn að síga fram úr í þeim síðari og unnu að lokum örugglega, 73-55. Jafnt var á með liðunum í upphafi leiks. Um miðjan fyrsta leikhluta, í stöðunni 8-6, tóku Selfyssingar góða rispu þar sem þeir skoruðu sjö…Lesa meira

true

Að duga eða drepast hjá Borgnesingum

Skallagrímur tapaði gegn Þór Þ. þegar liðin mættust í Domino‘s deild karla í körfuknattleik í gær. Leikið var í Borgarnesi. Eftir jafnan fyrri hálfleik voru gestirnir einfaldlega sterkari í þeim síðari og fóru að lokum með sigur af hólmi, 74-89. Borgnesingar höfðu yfirhöndina í framan af fyrsta leikhluta en Þórsarar voru aldrei langt undan. Seint…Lesa meira

true

Leikur í Lengjubikarnum spilaður í Ólafsvík

Með tilkomu gervigrass á knattspyrnuvöllinn í Ólafsvík hefur verið hægt að æfa og leika knattspyrnu í sveitarfélaginu mun lengur en áður var unnt. Því var fyrsti heimaleikur ársins hjá Víkingi í Lengjubikarinum spilaður á laugardaginn í hæglætisveðri. Þróttur Reykjavík sótti Víking heim, en bæði lið leika í riðli 2 í A deildinni. Leikurinn var bráðfjörugur…Lesa meira