Íþróttir

true

Snæfell tapaði stórt gegn Haukum á Ásvöllum

Snæfell tapaði fyrir Haukum, 119:91, í Bæjarins Beztu deild karla í körfuknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði í gærkvöldi. Heimamenn höfðu yfirhöndina frá upphafi og reyndust Snæfellingum erfiðir viðureignar, ekki síst vegna góðrar hittni fyrir utan þriggja stiga línuna. Haukar byrjuðu leikinn af krafti og leiddu 28:17 eftir fyrsta leikhluta. Þeir bættu við forskotið í öðrum…Lesa meira

true

Skallagrímskonur voru ofurliði bornar

Skallagrímur tapaði fyrir Breiðabliki, 49:80, í Bæjarins Beztu deild kvenna í körfuknattleik í Borgarnesi í gær. Gestirnir úr Kópavogi höfðu yfirhöndina frá upphafi og náðu Borgnesingar aldrei að ógna forystu þeirra að ráði. Breiðablik byrjaði leikinn af krafti og leiddi 25:14 eftir fyrsta leikhluta. Gestirnir bættu enn við forskotið í öðrum leikhluta, sem fór 23:13,…Lesa meira

true

ÍA tapaði sínum fyrsta leik í Bæjarins Bestu

ÍA tapaði fyrir Breiðabliki, 96:77, í Bæjarins Beztu deild karla í körfuknattleik í Smáranum í Kópavogi á föstudaginn. Skagamenn héldu vel í við heimamenn í upphafi en slakur annar leikhluti reyndist þeim dýrkeyptur. Leikurinn var jafn framan af og leiddu Blikar með aðeins tveimur stigum, 26:24, eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta tóku heimamenn hins…Lesa meira

true

Skallagrímur átti undir högg að sækja gegn Þórsurum

Skallagrímur beið stóran ósigur gegn Þór Þorlákshöfn í Bæjarins Beztu deild karla í körfuknattleik þegar liðin mættust á heimavelli Þórs í Þorlákshöfn í gær. Heimamenn höfðu mikla yfirburði í sóknarleiknum og fögnuðu að lokum öruggum 30 stiga sigri, 120:90. Þórsarar voru mun hittnari en Borgnesingar og nýttu skotfæri sín vel. Þeir hittu úr 61% skota…Lesa meira

true

Styrkja stækkun frisbígolfvallar í Borgarnesi

Verkefnið Frisbígolf í Borgarnesi hlaut nýverið Samfélagsstyrk Krónunnar. „Með styrknum vill Krónan styðja við uppbyggingu fjölbreyttra tækifæra til hreyfingar og útivistar í nærsamfélaginu,“ segir í tilkynningu. Samfélagsstyrkur Krónunnar er veittur árlega til verkefna sem stuðla að jákvæðum áhrifum í nærsamfélögum, meðal annars á sviði lýðheilsu, umhverfismála og samfélagsuppbyggingar. Andri Már Jónsson, meðstjórnandi í Hollvinasamtökum Borgarness,…Lesa meira

true

Keppt í ringó og boccia á Hvammstanga

Sunnudaginn 25. október var háð keppni í ringói í íþróttahúsinu á Hvammstanga. Eftir fjölmarga leiki þar sem vel var tekið á því urðu úrslit að í fyrsta sæti varð USVH-2, í öðru sæti varð UMSB og í þriðja USVH-1. Alls mættu sjö lið til keppni, þ.e. Glóðin Kópavogi, UMSB Borgarbyggð, FEBAK á Akureyri tvö lið,…Lesa meira

true

Þrír vestlenskir íþróttamenn hljóta starfslaun afreksíþróttafólks

Úthlutað hefur verið starfslaunum afreksíþróttafólks ÍSÍ fyrir tímabilið 1. nóvember 2026 til ársloka 2027. Markmiðið er að gera íþróttafólkinu kleift að helga sig íþrótt sinni og keppa við þau bestu á alþjóðavettvangi án þess að þurfa að velja á milli íþróttarinnar og afkomunnar. Úthlutað er í þremur flokkum; A, B og C. Fyrir A starfslaun…Lesa meira

true

Bæjarins Beztu komnar í fyrstu deild

Fyrsta deild karla og kvenna í körfuknattleik mun héðan í frá bera heitið Bæjarins Beztu deildin. Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) og Bæjarins Beztu Pylsur hafa undirritað þriggja ára samstarfssamning sem felur í sér nafnbreytingu á næst efstu deildum karla og kvenna. Samningurinn nær einnig til veitingasölu á landsleikjum og öðrum viðburðum á vegum KKÍ, en Bæjarins…Lesa meira

true

Sverrir að gera það gott í púttinu

Fjölmargir Íslendingar dvelja að jafnaði á Gran Canaria yfir vetrarmánuðina. Meðal afþreyingar þeirra er þátttaka í minigolfi þar sem Elín Kona Eddudóttir, sem starfar í verktöku sem síðuprófarkalesari Skessuhorns, stýrir keppnum púttara. Framfarir í tölvutækni gera það að verkum að engu skiptir hvar í heiminum prófarkalestur er unninn. Geta má þess í framhjáhlaupi að umbrot…Lesa meira

true

Öflugur síðari hálfleikur tryggði ÍA sigur á Hamri

Skagamenn unnu öruggan 99:80 sigur á Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik í AvAir höllinni á Akranesi í gærkvöldi. Eftir jafnan fyrri hálfleik tóku heimamenn öll völd í þeim síðari og tryggðu sér 19 stiga sigur. Alls fylgdust 179 áhorfendur með leiknum. ÍA byrjaði betur og leiddi 25:19 eftir fyrsta leikhluta. Gestirnir úr Hveragerði…Lesa meira