Sverrir sigurvegari Velkomin heim-móts Minigolf Yumbo á Gran Canaria.

Sverrir að gera það gott í púttinu

Fjölmargir Íslendingar dvelja að jafnaði á Gran Canaria yfir vetrarmánuðina. Meðal afþreyingar þeirra er þátttaka í minigolfi þar sem Elín Kona Eddudóttir, sem starfar í verktöku sem síðuprófarkalesari Skessuhorns, stýrir keppnum púttara. Framfarir í tölvutækni gera það að verkum að engu skiptir hvar í heiminum prófarkalestur er unninn. Geta má þess í framhjáhlaupi að umbrot á Skessuhorni þessi misserin er unnin á Tælandi, þar sem Sigurður Gísli Sigbjörnsson grafískur hönnuður Skessuhorns dvelur hluta úr ári.