Íþróttir

true

Mikill fjöldi skráninga í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 22. ágúst og styttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon. „Við hvetjum hlaupara sem vilja ná sér í miða í lengri hlaupin að hlaupa til því nú eru aðeins örfáir miðar eftir í heilt og hálft maraþon. Svo…Lesa meira

true

Tvö mörk Naim tryggðu Víkingi sigur í Ólafsvík

Víkingur Ólafsvík vann mikilvægan 2:1 sigur á Þrótti Vogum þegar liðin mættust á Ólafsvíkurvelli í 18. umferð 2. deildar karla í gær. 110 áhorfendur fylgdust með leiknum. Naim Aaras El Hmaidi var maður leiksins í liði heimamanna og skoraði bæði mörk Víkings. Hann kom liði sínu yfir á 30. mínútu og staðan var 1:0 í…Lesa meira

true

Meistaramót Íslands 11–14 ára

Um liðna helgi hélt Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar Meistaramót Íslands í flokki 11–14 ára í Borgarnesi. Um 150 keppendur tóku þátt í mótinu víðs vegar að af landinu. „Mótið gekk vonum framar og var mikil stemning meðal keppenda, þjálfara og áhorfenda í blíðskaparveðri á Skallagrímsvelli. Einnig var afar skemmtilegt að geta nýtt sér nýju höllina bæði til…Lesa meira

true

Einar Margeir með glæsilegan árangur á EM í París

Einar Margeir Ágústsson úr Sundfélagi Akraness átti frábært Evrópumeistaramót í París dagana 10.–16. ágúst. Hann bætti sig í öllum þremur einstaklingsgreinum sínum og setti um leið þrjú Akranesmet. Í lok mótsins var hann einnig í íslensku boðsundsveitinni sem setti nýtt Íslandsmet í 4×100 metra fjórsundi. Í öllum þremur einstaklingsgreinum sínum synti hann hraðar en áður…Lesa meira

true

Stefán og Katrín Íslandsmeistarar í pútti á Garðavelli

Íslandsmót 60 ára og eldri í pútti fór fram á Garðavelli á Akranesi þriðjudaginn 10. ágúst. Keppt var í sól og sumarblíðu og tóku alls 69 keppendur þátt í mótinu, sem var í umsjón púttdeildar FEBAN. Keppendur komu víða að, en 27 voru frá Púttklúbbi Suðurnesja í Reykjanesbæ, 21 frá FEBAN á Akranesi, 15 frá…Lesa meira

true

Skagamenn sóttu þrjú stig til Eyja

ÍA vann góðan 3:1-sigur á ÍBV í Bestu deild karla á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í gær. Skagamenn nýttu færi sín vel og eru með sigrinum komnir upp í fimmta sæti deildarinnar. Haukur Andri Haraldsson kom ÍA yfir á 39. mínútu og staðan var 1:0 í hálfleik. Markús Páll Ellertsson tvöfaldaði forystuna strax á 48. mínútu…Lesa meira

true

Skagakonur lögðu Keflavík á Akranesi

Kvennalið ÍA vann mikilvægan 2:1 sigur á Keflavík á heimavelli á Akranesi síðast liðinn föstudag. Skagakonur voru með forystuna frá 27. mínútu og þrátt fyrir að gestirnir næðu að minnka muninn undir lokin héldu heimakonur fengnum hlut og fögnuðu þremur stigum. Madison Brooke Schwartzenberger kom ÍA yfir á 27. mínútu og reyndist það eina mark…Lesa meira

true

Kári með stóran sigur í Vesturlandsslagnum

Kári frá Akranesi hafði betur gegn Víkingi Ólafsvík; 4-1 í leik í annarri deildinni í fótbolta í gær. Skagamenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik eftir mörk frá Sigurjóni Loga Bergþórssyni, Marinó Hilmari Ásgeirssyni og Finnboga Laxdal Aðalgeirssyni. Marinó Hilmar skoraði sitt annað mark snemma í síðari hálfleik áður en Luis Romero klóraði í bakkann…Lesa meira

true

Skallagrímur á toppinn

Þrír leikir voru á dagskrá í A-riðli 5. deildar karla í fótbolta í gær. Skallagrímur fór upp fyrir Smára og kom sér á topp A-riðils eftir 6-1 stórsigur gegn Uppsveitum á Laugarvatni. Heimamenn komust yfir eftir aðeins fjórar mínútur en gestirnir svöruðu með sex mörkum. Pétur Lárusson var hlutskarpastur í liði Skallagríms og skoraði hann…Lesa meira

true

Einar Margeir bætti persónulegt met í þriðja sinn á EM

Sundmaðurinn knái Einar Margeir Ágústsson frá Akranesi hélt áfram góðri frammistöðu sinni á Evrópumótinu í sundi í París í morgun þegar hann bætti persónulegt met sitt í 50 metra bringusundi. Einar synti á 27,77 sekúndum og bætti fyrra met sitt um 0,12 sekúndur. Hann hafnaði í 30. sæti af 67 keppendum og komst ekki áfram…Lesa meira