Íþróttir

true

Blikar reyndust Borgnesingum sterkari

Fyrsti leikur Breiðabliks og Skallagríms í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta, um laust sæti í Bónusdeildinni, var spilaður í gær í Kópavogi. Leikurinn var í höndum heimamanna allan tímann sem unnu allar lotur leiksins með talsverðum mun. Lokatölur urðu 118 stig Breiðabliks gegn 82 stigum Skallagríms. Þeir Milorad Sedlarevic og Matt Treacy voru atkvæðamestir…Lesa meira

true

Styrmir valinn efnilegastur ungra leikmanna

Í gær stóð Körfuknattleikssamband Íslands fyrir árlegri verðlaunahátíð sinni fyrir úrvals- og fyrstu deildir. Þar voru leikmenn, þjálfarar og dómarar verðlaunaðir fyrir frammistöðu sína í deildarkeppni sem lauk nýverið. Meðal helstu úrslit þá voru Þórir Guðmundur Þorbjarnarson leikmaður KR og Danielle Rodriguez í Njarðvík útnefnd bestu leikmenn úrvalsdeildar karla og kvenna. Meðal annarra viðurkenninga var…Lesa meira

true

Snæfell tapaði fyrsta úrslitaleiknum

Í gærkvöldi hófst úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta. Þar er spilað um laust sæti í Bónusdeildinni. Tvö lið af Vesturlandi taka þátt; Skallagrímur sem spilar í kvöld sinn fyrsta leik við Breiðablik, og Snæfell sem sótti Sindra heim á Hornafjörð í gær. Sá leikur endaði með sigri Sindra, 105-92. Austanmenn byrjuðu mun betur í…Lesa meira

true

Skallagrímur og Snæfell á leið í úrslitakeppnina

Í kvöld rúllar úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta af stað með þremur viðureignum. Eftir harða baráttu í vetur er nú komið að stóru stundinni þar sem leikið verður um laust sæti í efstu deild karla, Bónus deildinni. Eins og kunnugt er tryggði Höttur sér sigur í deildinni og fór því beint upp um deild.…Lesa meira

true

Sæmdartap Skagamanna í lokaleik sínum

Lið ÍA í Bónus deild karla í körfubolta tók í gær á móti Ármanni í lokaleik sínum í deildinni. Fyrir leikinn var ÍA fallið. Skagamenn ætluðu engu að síður að láta gestina hafa fyrir sigrinum. Ármann hafði þó yfirhöndina í tveimur fyrri leikhlutunum og leiddi í hálfleik með 60 stigum gegn 47. Í síðari hlutanum…Lesa meira

true

Snæfellskonur töpuðu fyrir Þór

Kvennalið Snæfells í körfunni sótti Þór Akureyri heim í deildarleik í 1. deildinni á þriðjudaginn. Heimakonur reyndust sterkari, unnu þrjá af fjórum leikhlutum og að leik loknum var staðan 89-72 fyrir Þór. Atkvæðamest í liði Snæfells var Anna Soffía Lárusdóttir með 24 stig, Valdís Helga Alexandersdóttir gerði 13 og Haiden Denise Palmer 12. Hjá Þór…Lesa meira

true

Gleði og bjartsýni innan herbúða KFÍA á Akranesi

Það er ekki að ástæðulausu að guli liturinn er einkennislitur ÍA. Hann er litur gleðinnar og hún er í fyrirrúmi í herbúðum KFÍA. Þar ríkir mikil bjartsýni og eftirvænting eftir komandi leikári í öllum flokkum knattspyrnunnar og þegar blaðamaður Skessuhorns gekk inn í nýju aðstöðuna í AvAir höllinni á Jaðarsbökkum skynjaði hann strax kraftmikið og…Lesa meira

true

Síðasti leikur ÍA í Bónus deild karla þetta árið

Fimmtudaginn 26. mars nk. klukkan 19:15 tekur ÍA á móti Ármanni í síðustu umferð Bónus deildar karla í körfunni, í AvAir höllinni á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns tók púlsinn á Fannari Frey Helgasyni, formanni körfuknattleiksdeildar ÍA, og þar var engan bilbug að finna. Menn eru strax farnir að leggja á ráðin fyrir næsta vetur og er…Lesa meira

true

Kristín Evrópumeistari og setti jafnframt heimsmet

Kristín Þórhallsdóttir varð í gær Evrópumeistari í -84 kg flokki í klassískum lyftingum á Evrópumóti sem fram fór á Möltu. Hún vann opna flokkinn og setti um leið heimsmet í aldursflokki 40-49 ára. Hún varð Evrópumeistari í samanlögðu og hnébeygju. Kristín er sem kunnugt er búsett í Borgarfirði og starfar sem dýralæknir. Á mótinu um…Lesa meira

true

Tap og sigur Vesturlandsliðanna

Vesturlandsliðin í 1. deild karla í körfunni áttu deildarleiki á föstudaginn. Skallagrímur sótti Hauka heim í Hafnarfjörðinn og reyndust gestgjafarnir ofjarlar. Haukar höfðu yfirhöndina í öllum leikhlutum og uppskáru að endingu 126 stiga sigur á móti 83 stigum Skallagríms. Á sama tíma tók Snæfell á móti Hamri í Stykkishólmi. Mun meira jafnræði var með liðunum…Lesa meira