
Gleði og bjartsýni innan herbúða KFÍA á Akranesi
Það er ekki að ástæðulausu að guli liturinn er einkennislitur ÍA. Hann er litur gleðinnar og hún er í fyrirrúmi í herbúðum KFÍA. Þar ríkir mikil bjartsýni og eftirvænting eftir komandi leikári í öllum flokkum knattspyrnunnar og þegar blaðamaður Skessuhorns gekk inn í nýju aðstöðuna í AvAir höllinni á Jaðarsbökkum skynjaði hann strax kraftmikið og jákvætt andrúmsloft þar inni. Þjálfarar, leikmenn og starfsfólk voru á mörgum vígstöðvum að vinna að undirbúningi vertíðarinnar sem hefst von bráðar. Deildin byrjar með fyrstu umferð í bikar um páskahelgina og síðan hefst fyrsti deildarleikur meistaraflokks karla sunnudginn 12. apríl nk. á útileik gegn Fram. Meistaraflokkur kvenna byrjar síðan í maí. Knattspyrnuárið er sífellt að lengjast í báða enda með þróaðri aðstöðu og betri völlum víðast hvar. Leikárið hefst fyrr og endar síðar en undanfarna áratugi.