
Síðasti leikur ÍA í Bónus deil karla þetta árið
Fimmtudaginn 26. mars nk. klukkan 19:15 tekur ÍA á móti Ármanni í síðustu umferð Bónus deildar karla í körfunni, í AvAir höllinni á Akranesi. Blaðamaður Skessuhorns tók púlsinn á Fannari Frey Helgasyni, formanni körfuknattleiksdeildar ÍA, og þar var engan bilbug að finna. Menn eru strax farnir að leggja á ráðin fyrir næsta vetur og er stefnan sett á að komast aftur upp í efstu deild að ári. Fannar hvetur bæjarbúa til þess að fylla höllina og styðja sína menn, því að það verður ekkert gefið eftir. Það verður spilað heiðursins vegna. "Það sigrar enginn með því að leggja árar í bát, við mótbyr sést best úr hverju menn eru gerðir og stuðningur heimafólks hefur þar mikið að segja. Styðjum okkar lið alla leið, segir Fannar.