Skallagrímur og Snæfell á leið í úrslitakeppnina

Í kvöld rúllar úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta af stað með þremur viðureignum. Eftir harða baráttu í vetur er nú komið að stóru stundinni þar sem leikið verður um laust sæti í efstu deild karla, Bónus deildinni. Eins og kunnugt er tryggði Höttur sér sigur í deildinni og fór því beint upp um deild. Önnur lið þurfa hins vegar að fara í gegnum úrslitakeppni til að fylgja þeim eftir og næla í sæti ÍA sem nú er laust. Leikir kvöldsins hefjast klukkan 19:15. Sindri tekur á móti Snæfelli, Haukar á móti Selfossi og Fjölnir á móti KV. Skallagrímur mun svo sækja Blika heim annað kvöld, laugardag, kl. 19:15.