Íþróttir

true

Leikur kattarins að músinni

Höttur tók á móti Snæfelli í fyrstu-deildarleik í körfubolta karla í gær. Hattarmenn sýndu að það er ekki tilviljun að þeir eru efstir í deildinni og höfðu yfirhöndina í öllum leikhlutum. Lokatölur urðu 132 gegn 73.   Hattarmenn deildu stigum býsna bróðurlega á milli sín, en Adam Eiður var stigahæstur með 25 stig, Ásmundur Múli…Lesa meira

true

Grundfirðingar gerðu góða ferð í Kópavoginn

Stelpurnar í blakliði Grundarfjarðar heimsóttu lið HK-U í Digranesi á föstudagskvöldið. Lið Grundarfjarðar sat í 4. sæti 1. deildar fyrir leikinn en HK U var í neðri hluta deildarinnar. Fyrsta hrinan var æsispennandi en liðin skiptust á að leiða framan af. Heimakonur í HK voru svo komnar í vænlega stöðu 24-22 og vantaði bara eitt…Lesa meira

true

Snæfellskonur áttu ekki roð við Aþenu

Snæfell tók í gær á móti Aþenu í leik í 1. deild kvenna í körfubolta. Gestirnir byrjuðu betur og höfðu talverða yfirburði eftir fyrstu tvo leikhlutana; tuttugu stiga munur og markatalan 61-41 í hálfleik. Síðari tvo leikhlutana voru Snæfells konur þó með yfirhöndina, en það dugði engan veginn til. Leikurinn fór því 83-98 fyrir Aþenu.…Lesa meira

true

Lokamínúturnar reyndust Skagamönnum erfiðar

ÍR tók á móti ÍA á föstudaginn í Skógarseli í leik í Bónusdeild karla í körfu. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur og höfðu heimamenn í ÍR yfirhöndina í fyrsta leikhluta, en Skagamenn í öðrum. Í hálfleik var staðan 50:45 fyrir ÍA. Þriðji leikhluti var einnig Skagamanna sem unnu hann með 16 stigum gegn 21. En svo…Lesa meira

true

Snæfell sigraði í Vesturlandsslagnum

Snæfell og Skallagrímur áttust í gær við í hreinum Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfunni. Fyrir leikinn var Skallagrímur á betri stað í stigatöflunni en heimavöllurinn var Snæfells og nýttu Hólmarar sér það. Eftir fyrsta leikhluta leiddu gestirnir úr Borgarnesi með 29 stigum gegn 24. Annar leikhluti var í járnum, en í síðustu tveimur…Lesa meira

true

Grundarfjörður tapaði naumlega fyrir toppliði KA U20

Blaklið Grundarfjarðar heimsótti topplið KA U20 á laugardasginn. Lið KA U20 er skipað yngri leikmönnum KA, eins og nafnið gefur til kynna, en þessar ungu stelpur hafa farið með himinskautum í 1. deildinni og hafa góða forystu á toppi deildarinnar. Lið Grundarfjarðar situr í fjórða sæti en þær höfðu tapað síðustu tveimur leikjum áður en…Lesa meira

true

Snæfellskonur með nauman sigur

Njardvík-B tók á móti Snæfelli í leik í fyrstu deild kvenna í körfu á laugardaginn. Leikar fóru þannig að Snæfell fór með sigur af hólmi, með minnsta mun: 58-57. Segja má að heimakonur í Njarðvík hafi átt fyrsta leikhluta en eftir hann leiddu þær með 15 stigum gegn sjö. Annar leikhluti var hins vegar gestanna…Lesa meira

true

Strákarnir efstir í aðalfundartvímenningi

Þriggja kvölda keppni í tvímenningi hjá Bridgefélagi Borgarfjarðar, sem kennd var við aðalfund félagsins, lauk í gærkveldi. Þeir Logi Sigurðsson og Heiðar Árni Baldursson sigldu sigri í örugga höfn, fengu að meðaltali 58,07% skor. Í öðru sæti urðu Ingimundur Jónsson og Anna Heiða Baldursdóttir með 57,4% og þriðju urðu Jón Eyjólfsson og Baldur Björnsson með…Lesa meira

true

Tap og sigur Vesturlandsliðanna

Bæði Vesturlandsliðin í 1. deild karla í körfubolta spiluðu leiki á föstudaginn. Snæfell tók á móti Haukum í Stykkishólmi og töpuðu heimamenn með 84 stigum gegn 99. Gestirnir höfðu yfirhöndina í öllum lotum, utan annarrar. Jakorie Smith var atkvæðamestur í liði Snæfells með 37 stig og 12 fráköst en Sturla Böðvarsson skoraði 14. Á sama…Lesa meira

true

Styrkir á Vesturland úr Íþróttasjóði

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur samþykkt tillögu um úthlutun styrkja úr Íþróttasjóði fyrir árið 2026. Úthlutað er til 76 verkefna fyrir alls 32 milljónir króna. Fimm félög á Vesturlandi hljóta alls sjö styrki að þessu sinni. Þau eru: Keilufélag Akraness, 400.000 krónur til viðhalds og endurnýjunar vélbúnaðar. Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar, 400.000 krónur, til kaupa á grindahlaupsgrindum. Skotfélagið…Lesa meira