Fréttir

true

Jonas Gemmer nýr liðsmaður ÍA

Danski knattspyrnumaðurinn Jonas Gemmer skrifaði um helgina undir samning við ÍA. Samningurinn gildir til loka sparktíðarinnar 2027. Jonas var án samnings en var þar til nýverið samningsbundinn Hvidovre í heimalandi sínu. Hann er 29 ára gamall og er lýst sem varnarsinnuðum miðjumanni. Hann hefur á ferli sínum leikið með ýmsum dönskum liðum og einnig lék…Lesa meira

true

Víkingar vann sinn leik en Kári tapaði

Liðsmenn Víkings í Ólafsvík héldu til Garðabæjar á laugardaginn þar sem þeir mættu liði KFG á Samsungvellinum í 12. umferð annarrar deildarinnar í knattspyrnu karla. Luis Romero Jorge fékk að líta rauða spjaldið á 32. mínútu leiksins. Einum manni færri náði Víkingur samt forystu í leiknum á 44. mínútu með marki Ingvar Freys Þorsteinssonar. Luke…Lesa meira

true

Samþykkti uppsetningu búnaðar til veðurmælinga vegna vindorkuvera

Á afgreiðslufundi byggingafulltrúa Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag voru teknar til afgreiðslu og samþykktar umsóknir frá fyrirtækinu Norconsult ehf. um byggingarleyfi fyrir mælibúnað á tveimur jörðum í Borgarfirði. Annars vegar á Þorvaldsstöðum í Hvítársíðu og hins vegar á Hæl í Flókadal. Sótt var um leyfi fyrir uppsetningu á mælibúnaði til veður- og vindmælinga. Ekki kemur nánar fram…Lesa meira

true

Vestfjarðavegi við Haukadalsá í Dölum lokað í sólarhring

Vegna ræsaframkvæmda verður Vestfjarðavegi (60) lokað norðan við Haukadalsá í Dölum frá kl. 17:00 í dag til kl. 17:00 á morgun þriðjudaginn 15. júlí. Vegfarendur til og frá Vestfjörðum verða því að aka Laxárdalsheiði (59) eða Holtavörðuheiði (1), Strandir og Ísafjarðardjúp á meðan lokun varir.Lesa meira

true

Riddarar kærleikans eru á kærleikshringferð um landið

Markmiðið er að skapa stóran kærleikshring og vekja athygli á söfnun fyrir Bryndísarhlíð Embla Bachman og Kári Einarsson, Riddarar kærleikans, lögðu af stað í kærleikshringferð um landið laugardaginn 12. júlí. Í ferðinni munu þau heimsækja bæi víðs vegar um landið og hvetja þau íbúa að taka þátt í kærleiksáskorunum í hverjum bæ en markmiðið er…Lesa meira

true

Rúmur fjórðungur sótti sér símenntun

Tæp 27% landsmanna á aldrinum 25-64 ára, eða 54.900 manns, sóttu símenntun á árinu 2024, tæp 24% karla og tæp 30% kvenna. „Þetta eru lítið eitt hærri tölur en árið á undan. Almennt eykst þátttaka í símenntun með aukinni menntun og var hún meiri á meðal starfandi og atvinnulausra en þeirra sem voru utan vinnumarkaðar…Lesa meira

true

Nýr áfangastaður í Búðardal

List, menning og veitingar í Dalíu Listakonan Fitore Alísdóttir Berisha stýrir nú kaffi- og menningarhúsi í Búðardal, sem heitir Dalía og er í eigu hjónanna Leifs Steins Elíssonar og Sveinbjargar Júlíu Svavarsdóttur. Þau keyptu hús sem áður hýsti bankaútibú í Búðardal og breyttu því í gistiaðstöðu og sal fyrir tónleika og aðra list- og menningarstarfssemi.…Lesa meira

true

Hvalfjarðargöng lokuð tvær næstu nætur

Loka þarf Hvalfjarðargöngum tvær nætur vegna malbikunarframkvæmda. Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni á að malbika á hringtorgi við Akrafjallsveg norðan megin við göngin og um 500 kafla niður að göngunum í báðar áttir. Framvæmdir munu standa frá klukkan 20:00 í kvöld, mánudaginn 14. júlí, til klukkan 07:00 að morgni þriðjudagsins 15. júlí. Aftur verður svo göngunum…Lesa meira

true

Flest mál ríkisstjórnarinnar önnur en veiðigjald falla dauð

Eftir eitthvert stormasamasta þing síðari tíma á Alþingi hefur nú verið samið um þinglok á morgun, mánudag. Eftir að forseti Alþingis ákvað á föstudaginn að ljúka umræðum um veiðigjöld og beita annarri málsgrein 71. greinar þingskaparlaga, má segja að friðurinn hafi endanlega verið úti á þingi, sé hægt að kalla ástandið „frið“ – þegar litið…Lesa meira

true

Veisla í Leirársveitinni – en svaf út síðasta morguninn

„Áin var alveg sprengfull af nýgengnum laxi og tökugleðin alveg í botni. Svo fengum við rigningu sem hafði allt að segja,“ sagði Eiríkur Garðar Eiríksson sem var að hætta veiðum í Laxá í Leirársveit í vikulokin eftir góðan veiðitúr, en það rigndi vel á svæðinu á fimmtudaginn og það hafði mikið af segja. Laxá var…Lesa meira