Fréttir

true

„Ég varð aðeins að breyta til“

Rætt við Þóri Valdimar Indriðason smið um störf hans hjá leigufélaginu Bríeti Þórir Indriðason hefur unnið sem smiður í 34 ár, hann fór beint úr grunnskóla í trésmíðanám og hefur að mestu starfað sem sjálfstæður smiður. Þórir var við tölvuna á skrifstofu leigufélagsins Bríetar, að Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi, þegar Skessuhorn bankaði upp á en…Lesa meira

true

Nokkuð um umferðaróhöpp

Nokkur umferðaróhöpp komu inn á borð Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Bílvelta varð á Snæfellsnesvegi og voru tveir fluttir á brott með sjúkrabifreið en meiðsli talin minniháttar. Tveir árekstrar urðu á Snæfellsnesi þar sem færð á vegi kom við sögu; snjóþekja og hálka var á veginum í báðum tilvikum og ekki allar bifreiðar búnar…Lesa meira

true

Ólafur Adolfsson gefur kost á sér til forystu í NV kjördæmi

Ólafur Adolfsson lyfsali hjá Apóteki Vesturlands hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Ólafur hefur ekki áður gefið kost á sér í landsmálin en var um árabil oddviti Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samhliða rekstri Apóteks Vesturlands. Auk Ólafs tilkynnti Teitur Björn Einarsson alþingismaður í dag að…Lesa meira

true

Norðvesturkjörkjördæmi missir einn þingmann til Kragans

Í kosningalögum er að finna ákvæði um skiptingu þingsæta eftir kjördæmum og breytingar á þeim með tilliti til atkvæðafjölda við næstliðnar kosningar. Í 10. grein kosningalaganna segir að eftir hverjar alþingiskosningar skuli landskjörstjórn reikna út fjölda kjósenda á kjörskrá að baki hverju þingsæti, að meðtöldum jöfnunarsætum. Þá segir í lögunum að séu helmingi færri atkvæði…Lesa meira

true

Iðandi pasta

Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af „First Price Fusili“ pastaskrúfum sem Krónan ehf. flytur inn vegna skordýra sem fannst í einum poka. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Varan sem um ræðir er seld í 500 gramma pokum með Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 11.06.2026 og hefur verið seld…Lesa meira

true

Kosið verður í fjögur efstu sæti á lista Sjálfstæðisflokksins – breytinga að vænta

Það kemur í hlut kjördæmaráða Sjálfstæðisfélaganna á landinu að velja á framboðslista fyrir þingkosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Aðal- og varamenn í Kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi hafa verið boðaðir á fund næstkomandi sunnudag sem haldinn verður í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þar verður kosið um fjögur efstu sæti framboðslistans og gert ráð fyrir uppröðun í önnur sæti.…Lesa meira

true

Raðhús rísa í Reykhólahreppi

Reykhólahreppur fékk afhent á mánudaginn nýreist raðhús frá Tekta ehf. en í húsinu eru fjórar 55 fermetra íbúðir. Raðhúsið er frágengið að utan og verður nú hafist handa við að innrétta það. Annað raðhús er einnig í byggingu en leigufélagið Bríet er um þessar mundir að reisa fjögurra íbúða raðhús, með 90 fermetra íbúðum. Loks…Lesa meira

true

Skallagrímur semur við nýjan leikmann

Körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi hefur samið við nýjan bandarískan leikmann. Deildin sagði upp samningi við Walter Kelser en hann meiddist fljótlega eftir komu sína til liðsins. Nýi leikmaðurinn heitir Ishmael Sanders og samkvæmt fréttatilkynningu frá deildinni kemur hann með mikla reynslu inn í lið Skallagríms. Sanders leikur í stöðu leikstjórnanda. Hann spilaði í San Diego…Lesa meira

true

Starfstengd námslína verður tekin upp í FVA eftir áramót

Verkefni sem krefst samvinnu allra í nærsamfélaginu Um næstu áramót mun Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi opna fyrir nýja námslínu innan framhaldsskólabrautar sem nefnist Starfstengd námslína. Til skýringar er framhaldsskólabraut ætlað að búa nemendur sem ekki hafa náð tilskildum árangri á grunnskólaprófi undir nám á bók- eða verknámsbrautum skólans. Starfstengdri námslínu er ætlað að grípa þá…Lesa meira

true

„Þörfin fyrir fjölda liðskiptaaðgerða verður áfram mikil“

Ítarlega rætt við Halldór Bergvinsson bæklunarskurðlækni á HVE á Akranesi Valkvæðar liðskiptaaðgerðir á mjöðmum og hnjám hér á landi voru samtals 2.138 árið 2023 og hafa aldrei verið fleiri. Ríflega 16% þeirra voru framkvæmdar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi en alls eru framkvæmdar liðskiptaaðgerðir á fimm stöðum hér á landi; Handlæknastöðinni, HVE Akranesi, Klínikinni, Landspítala…Lesa meira