
Norðvesturkjörkjördæmi missir einn þingmann til Kragans
Í kosningalögum er að finna ákvæði um skiptingu þingsæta eftir kjördæmum og breytingar á þeim með tilliti til atkvæðafjölda við næstliðnar kosningar. Í 10. grein kosningalaganna segir að eftir hverjar alþingiskosningar skuli landskjörstjórn reikna út fjölda kjósenda á kjörskrá að baki hverju þingsæti, að meðtöldum jöfnunarsætum. Þá segir í lögunum að séu helmingi færri atkvæði í einu kjördæmi en kjósendur að baki hverju þingsæti í einhverju öðru kjördæmi, miðað við kjörskrá í nýafstöðnum kosningum, skuli jafna atkvæðisréttinn. „Ef svo er skal landskjörstjórn breyta fjölda kjördæmissæta í kjördæmum þannig að dregið verði úr þessum mun. Sú breyting má þó aldrei verða meiri en þörf krefur hverju sinni til þess að fullnægja fyrirmælum þessa stjórnarskrárákvæðis.“