Ólafur Adolfsson gefur kost á sér til forystu í NV kjördæmi

Ólafur Adolfsson lyfsali hjá Apóteki Vesturlands hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Ólafur hefur ekki áður gefið kost á sér í landsmálin en var um árabil oddviti Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samhliða rekstri Apóteks Vesturlands. Auk Ólafs tilkynnti Teitur Björn Einarsson alþingismaður í dag að hann gæfi einnig kost á sér í oddvitasætið. Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir alþingismaður lýsti því hins vegar yfir í dag að hún sæktist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi og verður því ekki í kjöri í NV kjördæmi.

Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri í Dalabyggð sem orðaður hefur verið við framboð sagði í samtali við Skessuhorn fyrr í kvöld að hann ætlaði að sinna sveitarstjórnarmálum áfram og ekki sækjast eftir sæti ofarlega á lista Sjálfstæðisflokks. Kjördæmisráð kemur saman til fundar í Hjálmakletti í Borgarnesi nk. sunnudag og verður kosið þar um efstu sæti listans.