
Kosið verður í fjögur efstu sæti á lista Sjálfstæðisflokksins – breytinga að vænta
Það kemur í hlut kjördæmaráða Sjálfstæðisfélaganna á landinu að velja á framboðslista fyrir þingkosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Aðal- og varamenn í Kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi hafa verið boðaðir á fund næstkomandi sunnudag sem haldinn verður í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þar verður kosið um fjögur efstu sæti framboðslistans og gert ráð fyrir uppröðun í önnur sæti.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk tvo þingmenn í síðustu kosningum í kjördæminu; þau Þórdísi Kolbrúnu R Gylfadóttur og Harald Benediktsson. Haraldur vék af þingi fyrir hálfu öðru ári og við sæti hans tók Teitur Björn Einarsson. Samkvæmt heimildum Skessuhorns hefur Þórdís Kolbrún nú tilkynnt flokkssystkinum sínum í Norðvesturkjördæmi að hún sækist ekki eftir oddvitasæti listans í kjördæminu. Staðan er því opin og ljóst að breytingar verða. Teitur Björn upplýsti nýverið í samtali við Skessuhorn að hann bjóði fram krafta sína. Þá eru fleiri nöfn nefnd, en samkvæmt heimildum Skessuhorns er m.a. fast sótt að Birni Bjarka Þorsteinssyni, sveitarstjóra Dalabyggðar, að gefa kost á sér í oddvitasæti listans fyrir fundinn á sunnudag.