Fréttir

true

Myndamorgnar hefjast á ný í Borgarnesi

Myndamorgnar á föstudögum í Safnahúsinu í Borgarnesi eru á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar. Þar eru gestir beðnir um að aðstoða við greiningu á ljósmyndum úr eigu safnsins. Myndirnar sem sýndar voru á föstudaginn voru frá Stangveiðifélagi Borgarness og Friðriki Þórðarsyni. Næsti myndamorgun er föstudaginn 18. október klukkan 10.00.Lesa meira

true

Undirbúningur Útvarps Akraness hafinn

Útvarp Akraness er órjúfanlegur hluti jólaundirbúnings Skagamanna og hefur verið árum saman. Undirbúningur útvarpsins í ár er hafinn og verður útvarpað samkvæmt venju fyrstu helgina í aðventu sem í ár er 29. nóvember – 1. desember. „Dagskráin er í smíðum og ljóst að hún verður fjölbreytt að vanda, bæði fræðandi og skemmtileg. Útvarpsnefndin er ávallt…Lesa meira

true

Ungmennaráð Borgarbyggðar fór til Litháen

Dagana 27. – 28. september sl. fór fram ráðstefnan Nordic Baltic Youth Summit í Vilníus í Litháen. Ráðstefnan var haldin af Norrænu ráðherranefndinni í samstarfi við LiJOT, Ungmennaráð Litháens og LSU, Landsráð sænskra barna- og ungmennasamtaka. Markmið ráðstefnunnar var að styrkja tengsl og efla til samstarfs milli ungmenna á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum. Fram kemur…Lesa meira

true

Komdu í bingó vinan

Valgerður Helga Ísleifsdóttir bauð upp á alvöru bingó veislu fyrir konur á Snæfellsnesi í Samkomuhúsi Grundarfjarðar laugardagskvöldið 5. október. Hún er að halda þennan viðburð annað árið í röð en í fyrra tóks kvöldið framar vonum. Ekki voru viðtökurnar síðri í ár en uppselt var í bingóið og öll sæti seld. Allur ágóði af kvöldinu…Lesa meira

true

Tímamótadagur í Búðardal þegar byggingarkrani var reistur

Föstudaginn 4. október var settur upp byggingarkrani í Búðardal en starfsmenn verktakafélagsins Eyktar ehf. hafa nú komið sér fyrir í Búðardal og hefja brátt byggingu íþróttamiðstöðvar á staðnum. Byggingarkranar af þessari stærð eru ekki algengir á þessum stað. Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar segir að útlit sé fyrir að jarðvegsvinna klárist nú á næstu dögum…Lesa meira

true

Veglokun frá klukkan 9 til 13 á morgun

Á morgun, þriðjudaginn 8. október, verður Akrafjallsvegur (51-01) lokaður á milli hringtorgs við Hvalfjarðargöng og Akraness vegna malbiksviðgerða. Merkt hjáleið verður um hringveg og Akrafjallsveg (51-02) skv. viðhengdri merkingaráætlun. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 9:00 til kl. 13:00. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin…Lesa meira

true

Vel sótt bleik rökkurganga í Reykholti

Krabbameinsfélag Borgarfjarðar stóð fyrir bleikri rökkurgöngu í Reykholti í gærkvöldi í tilefni af bleikum október. Um 30 manns mættu og gengu léttan hring á staðnum með bleik ljós. Að göngu lokinni var farið inn í kirkju þar sem Anna Dröfn Sigurjónsdóttir flutti erindi og ýmsar hugleiðingar út frá eigin reynslu í baráttu við krabbamein. Einnig…Lesa meira

true

Nýr sjálfsafgreiðsluskúr í Ásgarði

Við bæinn Ásgarð í Dölum er kominn nýr sjálfsafgreiðsluskúr. Hægt er að greiða fyrir viðskipti með ýmsum leiðum en auðveldast er að greiða með reiðufé í heiðarleikaboxið sem staðsett er í skúrnum. Þegar Skessuhorn leit við var ekki mikið eftir í ísskápnum og því greinilegt að ferskt grænmeti er að seljast vel.Lesa meira

true

Eyjar í norðri fyrstu tónleikar Kalmans á starfsárinu

Kalman listafélag á Akranesi býður til tónlistarveislu í Vinaminni næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 20 í samvinnu við TonSagaNor. Þar verður sannkölluð tónlistarupplifun í tali, tónum og myndum undir yfirskriftinni ,,Eyjar í norðri“ með þeim Kolbeini Jóni Ketilssyni tenór, Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara, Guðna Franzsyni klarinettuleikara og Bergsveini Birgissyni rithöfundi. Aðgangseyrir er kr. 4.000 en kr. 3.500…Lesa meira

true

Heitavatnslaust við þrjár götur á morgun

Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að vegna viðgerðar verður heitavatnslaust við þrjár götur á Akranesi frá klukkan 9 til 16 á morgun, þriðjudag. Göturnar eru Garðabraut, Höfðabraut og Jaðarsbraut. Sjá nánar á heimasíðu Veitna www.veitur.is Veitur biðja velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda. „Í kuldatíð mælum við með að hafa glugga lokaða…Lesa meira