Eyjar í norðri fyrstu tónleikar Kalmans á starfsárinu

Kalman listafélag á Akranesi býður til tónlistarveislu í Vinaminni næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 20 í samvinnu við TonSagaNor. Þar verður sannkölluð tónlistarupplifun í tali, tónum og myndum undir yfirskriftinni ,,Eyjar í norðri“ með þeim Kolbeini Jóni Ketilssyni tenór, Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara, Guðna Franzsyni klarinettuleikara og Bergsveini Birgissyni rithöfundi.

Eyjar í norðri fyrstu tónleikar Kalmans á starfsárinu - Skessuhorn