Héraðsskólahúsið í bleikum ljóma og göngufólk með ljós. Ljósm. Sigurður Magnússon

Vel sótt bleik rökkurganga í Reykholti

Krabbameinsfélag Borgarfjarðar stóð fyrir bleikri rökkurgöngu í Reykholti í gærkvöldi í tilefni af bleikum október. Um 30 manns mættu og gengu léttan hring á staðnum með bleik ljós. Að göngu lokinni var farið inn í kirkju þar sem Anna Dröfn Sigurjónsdóttir flutti erindi og ýmsar hugleiðingar út frá eigin reynslu í baráttu við krabbamein. Einnig flutti séra Anna Eiríksdóttir ávarp. Bleikur varningur var til sölu á staðnum og fólki gafst kostur á að kaupa í jólapakkann en ágóði af sölunni rennur til Krabbameinsfélags Íslands. Næsta bleika rökkurganga verður á Hvanneyri sunnudaginn 13. október og hefst hún klukkan 19.30.