Veglokunin er í gildi á morgun, þriðjudag, frá kl. 9-13.

Veglokun frá klukkan 9 til 13 á morgun

Á morgun, þriðjudaginn 8. október, verður Akrafjallsvegur (51-01) lokaður á milli hringtorgs við Hvalfjarðargöng og Akraness vegna malbiksviðgerða. Merkt hjáleið verður um hringveg og Akrafjallsveg (51-02) skv. viðhengdri merkingaráætlun. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 9:00 til kl. 13:00. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu frá Colas sem vinnur verkið.

Veglokun frá klukkan 9 til 13 á morgun - Skessuhorn