
Matvælaráðherra hefur skipað Þóru Jóhönnu Jónasdóttur í embætti yfirdýralæknis. Þóra lauk doktorsprófi árið 2002 frá Dýralæknaháskólanum í Noregi (Norges Veterinærhøgskole, NVH) og embættisprófi í dýralækningum árið 1990 frá sama skóla. Þóra stundar meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, hefur lokið leiðsögunámi og námi í sjúkraflutningum. Þóra hefur starfað hjá Matvælastofnun sem sérgreinadýralæknir frá árinu…Lesa meira








