Fréttir

true

VG gaf andvirði sölu Kommakots til samfélagsverkefna

Í gær bauð Félag vinstri grænna í Grundarfirði til óvenjulegrar samkomu. Þar var ekki fengist um pólitík, heldur verið að veita sjö verðugum verkefnum á Snæfellsnesi styrki, undir yfirskriftinni „Í þágu samfélags“. Styrkirnir voru veittir í minningu Ragnars Elbergssonar, sem var foringi vinstri manna í Grundarfirði í 50 ár. Fjármunirnir urðu til við sölu á…Lesa meira

true

Forsetahjónin í ríkisheimsókn í Danaveldi

Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason eiginmaður hennar halda í dag til Danmerkur vegna ríkisheimsóknar sem hefst í Kaupmannahöfn á morgun, þriðjudaginn 8. október. Þórdís Kolbrún R Gylfadótttir utanríkisráðherra verður með í för ásamt opinberri sendinefnd. Hefð er fyrir því að fyrsta ríkisheimsókn nýs forseta í embætti sé til Danmerkur. Þetta er jafnframt fyrsta…Lesa meira

true

Gunnar Bjarnason SH seldur til FISK

Í vikunni sem leið var gengið frá samkomulagi Hraðfrystihúss Hellissands og FISK Seafood um sölu á dragnótarbátnum Gunnari Bjarnasyni SH-122 sem gerður hefur verið út frá Ólafsvík. Skipið er 100 rúmlestir að stærð og 24 metrar á lengd, smíðað í Kína árið 2001. Gunnar Bjarnason SH mun leysa Hafdísi SK-4 af hólmi en engar aflaheimildir…Lesa meira

true

Listin að vera leiðinlegt foreldri

Skagamaðurinn Ársæll Már Arnarsson hélt fræðandi og skemmtilegan fyrirlestur síðasta miðvikudag í Tónbergi á Akranesi. Nefnist hann „Í aga og kærleik – Listin að vera leiðinlegt foreldri.“ Ársæll Már fór á kostum þar sem hann ræddi ýmislegt varðandi uppeldi barna eins og félagshæfni þeirra og kom einnig inn á ýmis mál eins og tilfinningar, einelti,…Lesa meira

true

Kynna styrki úr Lýðheilsusjóði

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Lýðheilsusjóði árið 2025. Umsóknarfrestur er til 22. október næstkomandi. „Hlutverk Lýðheilsusjóðs er að styrkja lýðheilsustarf sem samræmist markmiðum laga um landlækni og lýðheilsu, í þeim tilgangi að stuðla að heilsueflingu og forvörnum. Styrkir eru veittir til verkefna og afmarkaðra hagnýtra rannsókna. Heilbrigðisráðherra ráðstafar fé úr lýðheilsusjóði að…Lesa meira

true

Nýsköpunardagur Vesturlands var á föstudaginn

Síðastliðinn föstudag var Nýsköpunardagur Vesturlands haldinn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Það voru Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Gleipnir og Nývest sem stóðu að dagskránni en markmið dagsins var að efla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf á Vesturlandi, tengja fólk saman og stuðla að nýjum verkefnum og verðmætasköpun á svæðinu. Dagskráin hófst klukkan 13 og var blanda af fræðslu,…Lesa meira

true

Opið hús í Sögumiðstöðinni þar sem fjallað var um geðrækt

Í gær var opið hús í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði. Þá var haldið erindi um geðheilsu og geðrækt í tilefni af gulum september sem er nýliðinn. Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri setti fundinn með stuttum inngangsorðum áður en Dagný Ósk Guðlaugsdóttir sagði frá úrræðum í boði hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands en hún er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir í Grundarfirði. Síðan…Lesa meira

true

Akrafjallsvegur lokaður á mánudag vegna framkvæmda

Á morgun, mánudaginn 7. október, verður Akrafjallsvegur (51-01) lokaður á milli hringtorgs við Hvalfjarðargöng og Akraness vegna malbiksviðgerða. Merkt hjáleið verður um hringveg og Akrafjallsveg (51-02) skv. meðfylgjandi korti. Verktakinn áætlar að framkvæmdirnar standi frá kl. 9:00 til kl. 18:00. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin…Lesa meira

true

Lokahóf yngri flokka ÍA

Á fimmtudaginn fór fram lokahóf yngri flokka ÍA í knattspyrnu í Akraneshöll. Þar komu iðkendur frá 3. flokki og yngri saman og gerðu sér glaðan dag. Iðkendur gátu boðið foreldrum og systkinum að koma, bregða sér á leik og fá grillaðar pylsur. Nokkur hundruð manns komu og voru grillaðar yfir 500 pylsur en þetta kemur…Lesa meira

true

Nær allir skotvopnaeigendur standa sig vel í vörslu skotvopna

Lögreglan á Vesturlandi vekur í FB færslu sinni athygli skotvopnaeigenda á breyttri löggjöf um vörslu skotvopna. „Með breytingum á vopnalögum sem tóku gildi í byrjun árs varð öllum eigendum skotvopna skylt að geyma þau í samþykktum læstum hirslum án tillits til hversu mörg skotvopn er um að ræða.“ Þá bættist við nýtt ákvæði sem segir…Lesa meira