
Styrkþegar ásamt stjórnarmönnum í Félagi vinstri grænna í Grundarfirði. Ljósm. tfk
VG gaf andvirði sölu Kommakots til samfélagsverkefna
Í gær bauð Félag vinstri grænna í Grundarfirði til óvenjulegrar samkomu. Þar var ekki fengist um pólitík, heldur verið að veita sjö verðugum verkefnum á Snæfellsnesi styrki, undir yfirskriftinni „Í þágu samfélags“. Styrkirnir voru veittir í minningu Ragnars Elbergssonar, sem var foringi vinstri manna í Grundarfirði í 50 ár. Fjármunirnir urðu til við sölu á húsnæði félagsins, „Kommakoti,“ sem hýsti félagsstarfið í áratugi.