
Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason eiginmaður hennar. Ljósm. Forsetaembættið
Forsetahjónin í ríkisheimsókn í Danaveldi
Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason eiginmaður hennar halda í dag til Danmerkur vegna ríkisheimsóknar sem hefst í Kaupmannahöfn á morgun, þriðjudaginn 8. október. Þórdís Kolbrún R Gylfadótttir utanríkisráðherra verður með í för ásamt opinberri sendinefnd. Hefð er fyrir því að fyrsta ríkisheimsókn nýs forseta í embætti sé til Danmerkur. Þetta er jafnframt fyrsta ríkisheimsóknin sem Danir bjóða til eftir að Friðrik X. varð konungur. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja söguleg tengsl Íslands og Danmerkur og efla enn frekar hið nána samband þjóðanna.