Það var vel mætt á fundinn og konurnar í miklum meirihluta. Kannski voru karlarnir heima að svæfa?! Ljósm. vaks

Listin að vera leiðinlegt foreldri

Skagamaðurinn Ársæll Már Arnarsson hélt fræðandi og skemmtilegan fyrirlestur síðasta miðvikudag í Tónbergi á Akranesi. Nefnist hann „Í aga og kærleik - Listin að vera leiðinlegt foreldri.“ Ársæll Már fór á kostum þar sem hann ræddi ýmislegt varðandi uppeldi barna eins og félagshæfni þeirra og kom einnig inn á ýmis mál eins og tilfinningar, einelti, ofbeldi, höfnun, einsemd, vanvirkni og umgengni við aðra. Ársæll Már er skemmtilegur ræðumaður og vakti oft hlátrasköll hjá viðstöddum með skemmtilegum lýsingum úr eigin lífi og einnig með hnyttnum sögum. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Ársæli Má eftir fundinn og spurði hann spjörunum úr um fyrirlesturinn.

Listin að vera leiðinlegt foreldri - Skessuhorn