Fréttir

true

Alþingi býður í heimsókn laugardaginn 14. september

Almenningi gefst kostur á að skoða Alþingishúsið og Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis á morgun, laugardaginn 14. september. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram í leiðsögn um Alþingishúsið en ekki þarf að skrá sig í heimsókn í Smiðju. Leiðsögn í Alþingishúsinu verður frá kl. 9 til 12 og aftur frá kl. 14 og 17 (bókað fyrirfram).…Lesa meira

true

Gestum í Guðlaugu fækkar en reksturinn batnar

Ef borið er saman tímabilið janúar til og með ágúst árin 2023 og 2024 hefur gestum í baðlaugina Guðlaugu á Akranesi fækkað. Gestir á þessu ári voru 9.860, eða 41 að meðaltali á dag. Árið 2023 var heildarfjöldi á sama tímabili 15.290, eða 62 á dag. Að sögn Daníels Sigurðssonar Glad, sem er forstöðumaður íþróttamála…Lesa meira

true

Komu í heimsókn frá Vestmanna í Færeyjum

Síðasta mánudag komu í heimsókn til Snæfellsbæjar bæjarstjóri og bæjarfulltrúar frá Vestmanna, vinabæ Snæfellsbæjar í Færeyjum.  Heimsóknir hafa verið reglulegar undanfarin ár, að undanskildum covid árunum, en þetta er fyrsta vinabæjarheimsóknin síðan fyrir faraldurinn. Fram kemur á vef Snæfellsbæjar að gestirnir fóru víða um bæjarfélagið með bæjarfulltrúum Snæfellsbæjar og fengu góða leiðsögn og góðan mat…Lesa meira

true

Ég er eins manns deild – segir gagnavörðurinn Benedikt

Benedikt Vilborgar og Jóhannesson ólst upp í Búðardal og býr nú ásamt fjölskyldu sinni í Hörðudal í Dölum. Benedikt vinnur sem gagnavörður (e.DIT) og hefur fyrirtæki hans, DIT Iceland unnið að mörgum af stærstu þáttaröðum og kvikmyndum sem teknar hafa verið upp á Íslandi. Nýverið vann hann að þáttaröðinni True Detective, kvikmyndinni Heart of Stone…Lesa meira

true

Vantar svörun frá Snæfellsnesi við þjónustukönnun Byggðastofnunar

„Ertu stanslaust á ferðinni til að sækja þér nauðsynlega þjónustu? Hvernig er aðgengi og hvert er framboð þjónustu í þínu nærumhverfi?“ Þannig hljóma spurningar sem Byggðastofnun setur fram í þjónustukönnun sem nú er í gangi. Stofnunin hvetur íbúa landsins til að taka þátt í þessari þjónustukönnun þar sem spurt er um þjónustusókn íbúa á landsbyggðinni…Lesa meira

true

Bæjarstjórn staðfestir breytingu deiliskipulags Smiðjuvalla 12-22

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur staðfest tillögu skipulags- og umhverfisráðs að deiliskipulagsbreytingu Smiðjuvalla 12 – 22. Á auglýstum athugasemdatíma við tillöguna bárust fimm umsagnir en engar athugasemdir. Breytingin sameinar í eina lóð Smiðjuvelli 12-22. Stærð sameinaðrar lóðar er 19.800 fermetrar, eða rétt tæpir tveir hektarar. Afmarkast lóðin af Smiðjuvöllum að norðvestan og norðaustan, Þjóðbraut að suðaustan og…Lesa meira

true

Fimm fyrirtæki í alútboði um byggingu knatthúss

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 5. september sl. var lögð fram niðurstaða forvals fyrir alútboð á byggingu fjölnota íþróttahúss, stundum kallað knatthús, vestan við Skallagrímsvöll í Borgarnesi. Byggðarráð staðfesti að eftirtaldir umsækjendur taka þátt í lokuðu alútboði vegna byggingarinnar: Alverk ehf., Eykt ehf., E.Sigurðsson ehf., Ístak hf. og Sjammi ehf. Samkvæmt vinnslutillögu verður heildarstærð fjölnota íþróttahússins…Lesa meira

true

Konur fyrir konur – Öflugur félagsskapur Vesturlandsdeildar FKA

Aðalfundur Vesturlandsdeildar FKA verður haldinn í dag, fimmtudaginn 12. september klukkan 18, í Landnámssetrinu í Borgarnesi. FKA er félag fyrir konur sem eru ýmist stjórnendur, leiðtogar og/eða starfsmenn í íslensku atvinnulífi. Félagið vinnur með aðilum á vinnumarkaði; fyrirtækjum, félagasamtökum og hinu opinbera að því að efla og benda á þátt kvenna í stjórnum eða stjórnunarstöðum…Lesa meira

true

Vill reka kaffisölu í Stúkuhúsinu

Á fundi menningar- og safnanefndar Akraneskaupstaðar í gær var tekið fyrir erindi frá áhugasömum aðila um rekstur kaffisölu á Byggðasafninu í Görðum, nánar tiltekið í Stúkuhúsinu. Menningar- og safnanefnd, stjórn safnsins og Jón Allansson forstöðumaður fögnuðu hugmyndinni og þessu frumkvæði um rekstur kaffisölu í Stúkuhúsi. Veru Líndal Guðnadóttur verkefnastjóra var falið að vinna áfram að…Lesa meira

true

Síðsumarsferð Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum

Síðsumarsferð FaB var farin fimmtudaginn 28. ágúst síðastliðinn.  Mæting var við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri, en þar tóku á móti okkur Ragnheiður I Þórarinsdóttir rektor LbhÍ og Rósa Björk Jónsdóttir kynningarfulltrúi skólans með kaffisopa og konfekti. Kynntu þær starfsemi skólans í máli og myndum auk þess sem við röltum um skólabygginguna og tókum tali kennara…Lesa meira