Fréttir

true

Sýningin Milli vita í Akranesvita

Svandís Egilsdóttir er nú með opna sýningu í Akranesvita. Heiti sýningarinnar; Milli vita II, vísar til trílógíu sem Svandís stendur fyrir þrjú sumur í röð í nokkrum vitum um landið. „Í málverkinu fer ég oftast af stað með óljósa hugmynd eða ákvörðun um hreyfingu eða lit út frá stað eða upplifun, en meðhöndla svo liti…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti á síðasta Ferguson dag sumarsins – myndasyrpa

Í gær var boðið upp á svokallaðan Ferguson dag á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Þetta var þriðji slíki dagurinn í sumar og sá fjölmennasti. Blíðskaparveður var í Borgarfirði og streymdi að fólk úr ýmsum landshlutum, meðal annars bændur sem nýttu tímann milli slátta til að gera sér dagamun og hitta mann og annan. Landbúnaðarsafnið hélt…Lesa meira

true

Nýliðunarstuðningur í landbúnaði

Matvælaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði, en sækja þarf um fyrir 1. september nk. Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. Uppfylla þarf nokkrar kröfur, svo sem að umsækjendur séu á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi. Þeir þurfa…Lesa meira

true

Sækja þarf um jarðræktarstyrki vegna útiræktunar fyrir miðjan mánuðinn

Matvælaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garðávöxtum til manneldis. Sótt er um á Afurð.is.  Umsóknum skal skilað eigi síðar en á miðnætti 15. ágúst næstkomandi. Skilyrði fyrir veitingu stuðnings eru skil á skýrsluhaldi í skýrsluhaldsforritinu Jörð og fullnægjandi túnkort af ræktunarspildu sem sótt er um styrk…Lesa meira

true

Flemming-pútt mótið var haldið á Hvammstanga

Föstudaginn 26. Júlí, á héraðshátíð Vestur-Húnvetninga – Eldur í Húnaþingi, fór fram í fjórtánda sinn púttmót sem undirritaður hefur staðið að með hjálp góðra vina á Hvammstanga frá 2011. Aðstaða til keppni var sæmileg, smá rekja og völlur nokkuð loðinn, en þátttakendur létu það ekki á sig fá. Að þessu sinni var þátttaka lítil, en…Lesa meira

true

Gönguferð um Grjótháls á sunnudaginn undir slagorðinu Heiðar í háska

„Fólkið í sveitinni, Landvernd og Mótvindur efna til göngu um heiðarland í háska á Grjóthálsi á sunnudaginn,“ segir í tilkynningu. „Við leggjum af stað frá Króki í Norðurárdal kl. 10:00 á sunnudaginn en gengið verður undir slagorðinu „Heiðar í háska”.” „Við göngum eftir Grjóthálsi á milli Norðurárdals og Þverárhlíðar. Göngufólk mun sjá þá náttúru sem…Lesa meira

true

Fleiri útlendingar en færri Íslendingar um Leifsstöð í júlí

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 277 þúsund í nýliðnum júlí samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða um 1.300 fleiri brottfarir en mældust í júlímánuði í fyrra (+0,5%). Um þriðjungur brottfara erlendra farþega voru Bandaríkjamenn, Þjóðverjar í öðru sæti og Pólverjar í þriðja. Sé litið lengra aftur í tímann má sjá svipaðan…Lesa meira

true

Skagakonur komnar í toppbaráttuna eftir sigur á ÍR

Meistaraflokkur kvenna hjá ÍA gerði góða ferð á ÍR-völlinn í gærkvöldi og sigruðu þær heimakonur 3:2. Með sigrinum eru þær nú í fjórða sæti deildarinnar með 22 stig, jafn mörg stig og ÍBV og Grótta sem eru í öðru og þriðja sætinu. En þessi lið eiga leik inni á Skagakonur, en það eru tvö lið…Lesa meira

true

Opnað fyrir umsóknir um atvinnuþróunar- og nýsköpunarstyrki

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands fyrir úthlutun í september næstkomandi. Í þessari úthlutun verða veittir styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar. Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem…Lesa meira

true

Samið um rekstur mötuneytis á Hvanneyri

Í gær var undirritaður samningur við Hjelm veitingar ehf. um rekstur mötuneytis í Ásgarði, aðalbyggingu Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Það voru Elmar Daði Sævarsson og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor sem skrifuðu undir samninginn og mun mötuneytið verða opnað næstkomandi mánudag, 12. ágúst. „Það verður spennandi að geta tekið á móti nemendum, starfsfólki og gestum nú…Lesa meira